• Bergur and Lilja Dís LM 2011
    Bergur and Lilja Dís LM 2011
  • Olil and Heilladís frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Heilladís frá Syðri Gegnishólum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Jón Bergsson
    Jón Bergsson
  • Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Bergur and Gandálfur frá Selfossi
    Bergur and Gandálfur frá Selfossi
  • Elin and Hugur frá Ketilsstöðum
    Elin and Hugur frá Ketilsstöðum
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Sunset at Syðri Gegnishólar
    Sunset at Syðri Gegnishólar
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum
    Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum
  • Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
    Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
  • Breeders of the year 2010
    Breeders of the year 2010
  • Dennis and Álfasteinn frá Selfossi
    Dennis and Álfasteinn frá Selfossi
  • Karen Rós, Álfadís and Olil
    Karen Rós, Álfadís and Olil
  • Olil and Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
  • Álfadís and Álfaklettur 2013
    Álfadís and Álfaklettur 2013
  • Freyja and Muggur
    Freyja and Muggur
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • The queen :) Katla
    The queen :) Katla
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Julio Borba
    Julio Borba
  • Brynja and Vakar in Piaff
    Brynja and Vakar in Piaff
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
    Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
  • Brynja and Berglind
    Brynja and Berglind
  • Jónatan frá Syðri Gegnishólum
    Jónatan frá Syðri Gegnishólum
  • Karen Rós
    Karen Rós
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
    Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
  • Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
    Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
  • Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
    Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
  • Friends
    Friends
  • Álfadís
    Álfadís
  • Berglind and Simbi frá Ketilsstöðum
    Berglind and Simbi frá Ketilsstöðum
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Sólrún
    Sólrún
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Sandra and Sirkus frá Syðri Gegnishólum
    Sandra and Sirkus frá Syðri Gegnishólum
  • Álfadís mare of honor 2013
    Álfadís mare of honor 2013
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Mothercare
    Mothercare
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
    Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
  • Kira and Kraflar
    Kira and Kraflar
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Freyja and Muggur
    Freyja and Muggur
  • Christina the owner and Olil the breeder
    Christina the owner and Olil the breeder
  • Olil and Heilladís
    Olil and Heilladís
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Breeders of the year 2012
    Breeders of the year 2012
  • Bergur and Ljóni frá Ketilsstöðum
    Bergur and Ljóni frá Ketilsstöðum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Breeders of the year 2010
    Breeders of the year 2010
  • Berglind and Brynja
    Berglind and Brynja
  • Djörfung frá Ketilsstöðum
    Djörfung frá Ketilsstöðum
  • Brynja and Vakar frá Ketilsstöðum
    Brynja and Vakar frá Ketilsstöðum
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Freyja and Gormur frá Selfossi
    Freyja and Gormur frá Selfossi
  • Olil and Sprengja frá Ketilsstöðum
    Olil and Sprengja frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Vigdís Finnbogadóttir
    Vigdís Finnbogadóttir
  • Tesla frá Ketilsstöðum born 2010
    Tesla frá Ketilsstöðum born 2010
  • Álfasteinn and Hetta
    Álfasteinn and Hetta
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
  • Natan frá Ketilsstöðum
    Natan frá Ketilsstöðum
  • Bergur and Bylgja frá Ketilsstöðum
    Bergur and Bylgja frá Ketilsstöðum
  • Katla og Bergur
    Katla og Bergur
  • Tígur, son of Ljónslöpp and Álffinnur born 2010
    Tígur, son of Ljónslöpp and Álffinnur born 2010
  • Álfur frá Selfossi
    Álfur frá Selfossi
  • Elin og Frami 2016
    Elin og Frami 2016
  • Tesla frá Ketilsstöðum
    Tesla frá Ketilsstöðum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Lokkur frá Syðri Gegnishólum
    Lokkur frá Syðri Gegnishólum
  • Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
    Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Spurning frá Syðri Gegnishólum
    Spurning frá Syðri Gegnishólum
  • Wintertime
    Wintertime
  • Hátign and Drift
    Hátign and Drift
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Bergur and Ægir frá Ketilsstöðum
    Bergur and Ægir frá Ketilsstöðum
  • Bergur and Hugur frá Ketilsstöðum
    Bergur and Hugur frá Ketilsstöðum
  • Álffinnur frá Syðri Gegnishólum
    Álffinnur frá Syðri Gegnishólum
  • Olil and Tíbrá frá Ketilsstöðum
    Olil and Tíbrá frá Ketilsstöðum
  • Álfadís mare of honor 2013
    Álfadís mare of honor 2013
  • Kira and Brynja
    Kira and Brynja
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Ófeig, Grábrá and Christina
    Ófeig, Grábrá and Christina
  • Freyja and Elin
    Freyja and Elin
  • Beauty in the mist
    Beauty in the mist
  • Olil and Gramur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Gramur frá Syðri Gegnishólum
  • Spes and Tesla frá Ketilsstöðum
    Spes and Tesla frá Ketilsstöðum
  • Olil and Védís frá Hellubæ
    Olil and Védís frá Hellubæ
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Jóhannes Stefánsson
    Jóhannes Stefánsson
  • Bergur and Álfasteinn frá Selfossi
    Bergur and Álfasteinn frá Selfossi
  • Birthday present
    Birthday present
  • Álfadís, Grýla and Heilladís
    Álfadís, Grýla and Heilladís
  • Freyja and Gormur frá Selfossi
    Freyja and Gormur frá Selfossi
  • Lokkur frá Syðri Gegnishólum
    Lokkur frá Syðri Gegnishólum
  • Álfur frá Selfossi
    Álfur frá Selfossi
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
    Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
10
Jun 10

Ljónslöpp eignaðist gullfallegt hestfolald í fyrradag, en faðir þess er hann Álffinnur okkar. Hann klikkaði auðvitað ekki á litnum núna heldur,  en sá stutti er auðvitað rauðskjóttur eins og hann Ljóni bróðir hans en þeir eru 3/4 bræður.

Mér finnst athyglivert hvað folöldin hans eru vel skjótt, hvítar framfætur u.þ.b. upp að hnjám, annars frekar lítið hvítt og lituð læri ( :   engin hvit ( gul) læri til að þvo. Engar breiðar blesur, heldur finnst mér skjótti liturinn á þessum fjórum  folöldum sem eru fædd hjá okkur vera þeim til prýði. Vonandi heldur þetta áfram svona. 

 ljnslpp_og_sonur_8_jn_10_001  ljnslpp_og_sonur_8_jn_10_003
 ljnslpp_og_sonur_8_jn_10_002  

07
Jun 10

Álfadís eignaðist fallega hryssu í dag 6 júní, en faðir hennar er Dugur frá þúfu. Hún er rauðtvístjörnótt og mikið er ég ánægð með að hafa eignast hryssu. Svona lítur hún út nokkra klukkustunda gömul.

 

           lfads_og_dttir_6_jni10_008  lfads_og_dttir_6_jni10_003       
 lfads_og_dttir_6_jni10_007  lfads_og_dttir_6_jni10_006

06
Jun 10

Kraflar frá Ketilsstöðum er átta vetra, grár, með 8,28 í aðaleinkunn. Faðir hans var Ægir frá Ketilsstöðum og móðir hans er Þerna frá Ketilsstöðum sem er klárhryssa með 7,96 í aðaleinkunn.Undan þernu eru sex dæmd afkvæmi, þar af fjögur í 1.verðlaun og meðaleinkunn afkvæmanna eru 8,06. Þar af er Spes dóttir Þernu og Sveins Hervars frá Þúfu með 8,20 i

í aðaleinkunn, 8,41 fyrir hæfileika. 9,0 fyrir tölt, brokk, vilji og fegurð og 9,5 fyrir hægt stökk og stökk. Krafla dóttir hennar og Hljóms frá Ketilsstöðum er með 9,5 fyrir hægt tölt og 9,0 fyrir tölt. Þerna, er undan Stíg frá Kjartansstöðum og Sylgju frá Ketilsstöðum,  Sylgja sem var ódæmd var undan Mána frá Ketilsstöðum sem var sonur Ófeigs frá Hvanneyri og Kötlu frá Ketilsstöðum, klárhryssa með 7,72 í aðaleinkunn, en hún var undan Rauðku frá Ketilsstöðum, sem var með 1.verðlaun fyrir afkvæmi og var dóttir Ljónslappar 1817 og Lýsings frá Voðmúlastöðum.

Máni frá Ketilsstöðum var með 1.verðlaun og náði þeim frábæra árangri að fá 1.verðlaun fyrir afkvæmi aðeins níu vetra gamall. Neisti frá Skollagróf var síðan afi hennar í móðurætt.

Ægir frá Ketilsstöðum faðir Kraflars var með 8,25 í aðaleinkunn fimm vetra gamall og efsti stóðhesturinn í fimm vetra flokki á HM í Austuríki 2001. Alsystir hans Alda frá Ketilsstöðum var með 8,35 í aðaleinkunn fimm vetra gömul. Ægir var undan Gusti frá Hóli  og Vakningu frá Ketilsstöðum en þau voru bæði með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Vakning er móðir m.a. Brimnis og Vakars en ættir hennar rakti ég í greininni um Brimni. Ættir Gusts rakti ég í greininni um Gandálf.

Kraflar er hreyfingamikill og geðgóður hestur, hann er mikið fjórgangsefni, með einstakt hægt tölt og hægt stökk.

 

Kraflar verður í húsnotkun hér hjá okkur í Syðri Gegnishólum í sumar, en stefnt er með hann í keppni í sumar.

Sköpulag: 7,0  8,0  8,0  8,5  8,5  8,5  9,5  8,0   8,36.

Hæfileikar: 9,0  9,0  5,0  8,5  8,5  9,0  8,0  9,5  9,5   8,23.   Aðaleinkunn   8,28.

115 stig í kynbótamat.

 kraflar_s_13   kraflar          Kraflar á LM '08
 kraflarmars_001Í þjálfun í Syðri Gegnishólum. kraflarmars_007 

06
Jun 10

Bara svona rétt til að undirstrika að hann ætlaði ekki að klikka á litnum,bjó Álffinnur til þennan myndarlega son með Framkvæmd, en han fæddist um þrjúleytið í nótt.

 

 

skjni_minn_001 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 skjni_minn_002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

skjni_minn_003

05
Jun 10

Jæja, nú verð ég að taka mér smá pásu frá stóðhestunum okkar, en ég er ekki nærri því búin að skrifa um þá. En málið er að ég fór út í girðingu til að skoða nýfædda folaldið mitt undan Myllu frá Selfossi.

Faðir þess er Álffinnur undan Álfadísi frá Selfossi og Orra frá Þúfu, hann er brúnskjóttur 3 vetra albróðir Álfs frá Selfossi. Þetta er sjötta folalðið sem fæðist undan honum og þegar fyrstu þrjú voru einlit, tvær brúnstjörnóttar hryssur og jarpur hestur, var Bergur að verða brúnaþúngur, þetta gat ekki verið eðlilegt.....Svo kom Orka frá Gautavík með fifilbleikskjóttann hest,Vaka frá Hellubæ með rauðskjótta hryssu og Mylla bætti svo víð jarpskjóttum hesti og þau eru öll bara vel skjótt, finnst mér allavega. 

 mylla_og_orka_me_folld10_003             Mylla og sonur. mylla_og_orka_me_folld10_004 
 mylla_og_orka_me_folld10_006  mylla_og_orka_me_folld10_008
 mylla_og_orka_me_folld10_007  mylla_og_orka_me_folld10_005
 mylla_og_orka_me_folld10_002         Orkusonur.  mylla_og_orka_me_folld10_001

04
Jun 10

natanjeNatan frá Ketilsstöðum er niu vetra gamall, jarpur með aðaleinkunn 8,40. Hann er sonur Kolfinns frá Kjarnholtum og Væntingar frá Ketilsstöðum. Vænting er 1. verðlauna hryssa undan Hugmynd frá Ketilsstöðum og Toppi frá Eyjólfsstöðum, sem gerir hana að systir Framkvæmdar en um hana skrifaði ég i greinina um Hug frá Ketilsstöðum. En vert er að taka fram að Hugmynd frá Ketilsstöðum var með 1.verðlaun, heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og var i sjötta sæti á LM´90 á Vindheimamelum i A flokki. Vænting er siðan undan Toppi frá Eyjólfsstöðum, sem var gullfallegur hestur með 8,53 fyrir sköpulag, 8,39 fyrir hæfileika og samtals 8,46 aðeins fimm vetra gamall. Það eru nú engar smá tölur og geri aðrir betur, en i minum huga er það sem ég man best eftir, "hormona sjokkið" fræga. En grínlaust var Toppur frábærlega ættaður, undan gæðingshryssuní Seru frá Eyjólfsstöðum, en húnvar öðru sæti i flokki 6 vetra og eldri á LM´82 á Vindheimamelum með 8,26 i aðaleinkunn, þ.a 8,0 stökk og skeið, 8,5 fyrir tölt, geðslag, fegurð i reið og 9,0 fyrir brokk og vilja. Bergur segir mér að hún sé einn mesti gæðingur sem hann hefur verið með. Faðir Topps var Hrafn 802 frá Holtsmúla, en hann þarf nú ekkert frekar að minnast á, hann þekkja allir. Það þýðir ekki að rifast um hann, hann sannaði sig einfaldlega.

Faðir Natans er Kolfinnur frá Kjarnholtum, sem var undan Hrafni frá Holtsmúla og Glókollu frá Kjarnholtum. Kolfinnur var með efstur stóðhesta i flokki 6 vetra og eldri á LM´90 með 8, 45 1 aðaleinkunn. Hann fékk 9,0 fyrir tölt og brokk og 9,5 fyrir skeið, en aðeins 8,5 fyrir vilja og 8,5 fyrir geðslag. Sem ég ætla að leyfa mér að segja að hafi verið fáranlegar einkunnir og algerlega úr takt við einkunninar sem hesturinn fékk fyrir tölt, brokk og skeið. Hesturinn var einn rýmsti hestur allra tima, hann var ekki flottasti hesturinn á hægu, en hann var hreinn og mjúkur  og þegar stígið var á bensingjöfina var alltaf svarað undir eins, hann var eins og hugur manns. með fullri virðingu fyrir öllum þeim frábæru gæðingum sem ég hef verið svo heppin að fá að þjálfa eða komist á bak á er og var hann einfaldlega sá besti. Talandi um vilja og geðslag, hann rótaðist áfram, 400 metra á kappreiðavellinum á Hellu var eins og að drekka vatn, fram og tibaka, tölt, brokk, skeið, alltaf þjáll,hvað viljum við meira?? Það þarf vilja og geðslag likamlegan styrk til að gera svona lagað en það er einmitt likamlegi styrkurinn sem getur ruglað fyrir. Hestar með þetta ganglag þurfa undantekningalitið nokkur ár til að ná styrk og þá verður umtalið að þeir eru seinir til......Hann var ekki svona þegar hann var fjögurra vetra, nei það er eðlilegt, það er fyrst þegar hestur eldist að hann geti gert svona lagað, en eitt er víst að hestur sem afrekar svona eins og hann gerði aftur og aftur, þá er viljinn eins og best er á kosið, hvernig sem hann var þegar hann var yngri. Best að hætta að skrifa um Kolfinn núna, ég finn að ég gæti auðveldlega skrifað um hann heila bók. Móðir Kolfinns var Glókolla frá Kjarnholtum, en hún var með 7,61 i aðaleinkunn. En eitthvað var meira i þessari meri, þvi hún hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og af þeim fimmtán afkvæmum sem hún átti voru þrettán dæmd og meðaleinkunn þeirra er 8,01.

Natan varð fyrir miklu slysi þegar hann var veturgamall er han sleit sin á afturfæti og var það vegna þráhyggju Björns Steinbjörnssonar dýralæknis að han var ekki felldur. Hann og Jón heitinn Bergsson hjúkruðu honum í á annað ár þar til Súsí dyralæknir tók við  þegar hann kom til tamningar hjá okkur á  Selfoss. Hanvar taminn á fjórða vetur en við urðum að hætta þvi han var með sýkingu i beininu svo sárið gréri aldrei alveg. Á fimmta vetur gekk vel og var hann  sýndur í kynbótadóm um vorið þar sem hann fékk 8, 40 í aðaleinkunn. Eftir á að hyggja hefðum við átt að láta staðar numið þar því þó að hægt væri að ríða honum og hann fékk glæsilegan dóm var hann ekki alveg heill, það er að segja hann gat safnað sér saman en ekki teygt almennilega úr fætinum á ferð þannig að hann var t.d alltaf ójafn á skeiði og greinilegt að hann fór að hlífa fætinum því meira sem við reyndum að teygja úr honum. En það er alltaf gott að vera vitur eftirá  en í hita leiksins hélt maður bara að það myndi ganga upp, það var svo fjandi mikið meira i honum.

Natan er léttbyggður og  háfættur alhliðahestur með mjúkar og góðar hreyfingar. Ég held að hann hefði getað orðið mjög rúmur á öllum gangi. Hann er með háttsettan háls, á auðvelt með að safna sér saman og ganga vel á hægu og er ótrúlega góður reiðhestur.Við erum byrjuð að temja tvo hesta undan honum og þeir eru báðir mjög efnilegir, stefnt er með Amazon sem er 4 vetra i dóm i sumar, en hinn er geldingur.

Natan verður liklega i girðingu hér hjá  okkur eða einhverstaðar á suðurlandi en eins og er, er hann i húsnotkun hér hjá okkur i Syðri Gegnisholum.

sköpulag: 8,5  8,0  8,0  9,0  7,5  8,0  8,5  8,0   8,23

Hæfileika: 9,0  8,5  7,5  8,0  8,5  9,0  8,0  8,0  7,5   8,51     Aðaleinkunn: 8,40. 

118 stig i kynbótamat. 

 ljni_og_amazon_jn10_009Tvö afkvæmi Natans. Amazon 4 v. undan Orku frá Gautavík.ljni_og_amazon_jn10_001 
 ljni_og_amazon_jn10_022Amazon og Ása i apríl.  glei10_001Gleði 1.v undan Kolbrá frá Miðsitju.

 

 

 

02
Jun 10

Hlébarði frá Ketilsstöðum er fimm vetra gamall undan Aron frá Strandarhöfða og Ljónslöpp frá Ketilsstöðum sem hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi síðastliðið haust. Ljónslöpp er undan Oddi frá Selfossi og Snekkju frá Ketilsstöðum en ættir Snekkju eru raktar í greininni um Ljóna bróðir hans.Oddur frá Selfossi er undan Kjarval frá Sauðarkróki og Leiru frá Þingdal og man ég eftir að hafa séð Leiru í reið einu sinni en hún var fallega geng og viljug alhliðahryssa , hún var með 1 verðlaun og heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Aron frá Strandarhöfða er með 8,22 fyrir sköpulag, 8,75 fyrir hæfileika, þ.a 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið, samtals 8,54 og 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Móðir hans er Yrsa frá  Skjálg og faðir hans er Óður frá Brún, en Óður á ættir sinar að rekja til m.a Ófeigs frá Flugumýri, Stígs frá Kjartansstöðum, Náttfara frá Ytra Dalsgerði og Sörla frá Sauðarkróki. Yrsa frá Skjálg er undan Skör frá Skjálg sem er undan Skarða frá Skörðugili sem siðan var undan Kul frá Eyrarbakka.En Skarði  og Kulur voru vígaflottir klárhestar með tölti.

Hlébarði er laus til leigu í sumar, en eins og er í húsnotkun hjá okkur í Syðri Gegnishólum.

Bergur s.8954417  og  Olil  8972935.

Sköpulag: 8,0  8,0  8,0  8,0  8,5  7,0  8,5  9,0   8,11

Hæfileika: 9,0  8,0  7,5  8,0  8,0  8,5  9,0  9,0  8,5   8,32       Aðaleinkunn: 8,24

       117 stig i kynbótamat. 

 hlbari_og_hrollur10_002  hlbari_og_hrollur_001

 

 

 

01
Jun 10

Hugur frá Ketilsstöðum er 5 vetra sótrauðblesóttur,sokkóttur og glaseygður. Hann er sonur Ör frá Ketilsstöðum, en hún slasaðist illa á fæti sem tryppi og var ekki hægt að temja hana sökum þess. Ör er undan Kjarval frá Sauðarkróki og Framkvæmd frá Ketilstöðum, þannig að hún er systir Djörfungar, Minningar og Flugnis. Djörfung frá Ketilstöðum var  fjögurra vetra á síðastliðnu landsmóti var með 8,23 í aðaleink. 8,68 fyrir hæfileika, m.a 9,5 fyrir skeið og vilja. Minning var í fimm vetra flokki á sama móti og er líka með 9,5 fyrir skeið og 8,18 í aðaleinkunn. Flugnir fékk 9,0 fyrir skeið í fyrra fjögurra vetra gamall og 8,11 í aðaleink. Framkvæmd er undan Hrafni frá Holtsmúla og Hugmynd frá Ketilsstöðum, hún stóð efst í flokki fjögurra vetra hryssna á FM 1995. Hugmynd fékk 1.verðlaun sjálf en aðeins 8,5 fyrir skeið, en þeir sem muna eftir henni síðan á LM´90 þegar Bergur keppti á henni í A flokki í úrslitunum geta ekki gleymt hverning hún tók á því. Hún hreinlega flaug áfram, þar voru ekki neinir 8,5 sprettir á ferð. Bróðir Framkvæmdar, Hjörvar frá Ketilsstöðum fékk 10 fyrir skeið, sjö vetra gamall. Varast ber að tala endalaust um skeið og ekki má gleyma að flest þessara hrossa sem ég er búin að minnast á eru í heild sinni frábærir alhliðahestar, með allan gang góðan og með mjög góðar tölur fyrir hinar gangtegundirnar.

Faðir Hugs er Hróður frá Refsstöðum og móðir hans er Rán frá Refsstöðum, sem er undan Nattfara frá Ytra Dalsgerði. Ef maður skoðar dóm Ránar, lítur það úr fyrir að hún hafi verið óskapleg tútta, með 7, 66 í aðaleinkunn. En það var nú aldeilis ekki, hún var í tamningu hjá okkur í Stangarholti, fór í dóm eftir tæplega tveggja mánaða tamningu sem er auðvitað alveg út í hött. Hún var bæði falleg og mjög efnileg og er eitt af þeim tryppum sem  maður man eftir og falaði ég hana stíft á sínum tima. Faðir Hróðs er Léttir frá Stóra Ási, sem er undan gæðingshryssuni Harpa Gáskadóttir frá Hofsstöðum og Kolfinni frá Kjarnholtum, einn rýmsti hestur allra tíma.

Eins og sést standa miklir gæðingar að þessum hesti, en mér finnst einmitt gaman að skoða ættir áhugverðra hrossa og sjá hverning þeir liggja saman.

Hugur er sterklega vaxinn, og hlutfallaréttur hestur sem ber mikinn svip af  föður sínum. Hann er jafnvígur alhliðahestur, með mikinn og þjálan vilja.

Hugur er laus til leigu i sumar, en er eins og er i húsnotkun hér hjá okkur i Syðri Gegnishólum.

Bergur s. 8954417   og Olil   8972935.

Sköpulag: 7,0  8,0  8,5  8,0  8,0  7,0  8,5  8,0   7,96.  Aðaleinkunn. 8,29.

Hæfileika: 8,5  8,0  8,5  8,5  9,0  8,5  8,5  8,0  8,0   8,51 

       119 stig i kynbótamat  

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_057 hafnarfj._28_mai_yfirlit_049 
 hafnarfj._26_mai10_013  hahnarfj.25_og_27_mai10_002-1

      Myndir: Gangmyllan

 

01
Jun 10

Vakar frá Ketilsstöðum er 7 vetra gamall, rauðstjörnóttur með 8,25 í aðaleinkunn. Móðir hans er Vakning frá Ketilsstöðum, sem gerir hann að stóra bróður Brimnis. Vakning er undan Hrafni frá Holtsmúla og Snekkju frá Ketilsstöðum, en frekari upplýsingar um þær ættir er að finna í greinunum um Ljóna og Brimni.

Faðir hans er Brjánn frá Reykjavik, en hann er undan Hrynjanda frá Hrepphólum og Bertu frá Vatnsleysu, hér erum við komin inn á mjög áhugaverða klárhestaætt. Brjánn hefur orðið þýskur og Mið-Evrópskur meistari í fjórgangi og meðaleikunn hans i fjórgangsforkeppni miðað við þær upplýsingar sem ég hef er um  7,40.  Systkini Brjáns að móðurinni til eru m.a. Filma frá Árbæ og Gauti frá Reykjavík, en undan Filmu er m.a hin flotta Telma frá Reykjavik með 8,26 í aðaleinkunn. Gauti er m.a. faðir Auðs frá Lundum og Sambers frá Ásbrú.

Vakar er háfættur ,vel gerður og myndarlegur klárhestur með tölti. Hann er efni í mikinn fjórgangara og hefur alla burði í að verða farsæll á keppnivelllinum.

Vakar er laus til leigu í sumar en er eins og er í húsnotkun hér hjá okkur í Syðri Gegnishólum.

Bergur s. 8954417 og Olil s. 8972935

Sköpulag: 8,0  8,0  9,0  8,5  8,0  8,0  9,0  7,0    8,28.  Aðaleinkunn  8,25.

Hæfileika: 9,0  9,0  5,0  9,0  8,5  9,0  8,5  9,0  9,0   8,23 

     115 stig í kynbótamat . 

 

     hafnarfj._28_mai_yfirlit_091Vakar, knapi: Max Olausson
 hafnarfj._28_mai_yfirlit_093

 

Myndir: Gangmyllan.

31
May 10

Brimnir frá Ketilsstöðum er 5 vetra gamall, bleikálóttur að lit með 8, 45 í aðaleinkunn. Hann er undan Vakningu frá Ketilsstöðum sem er með 1.verðlaun og var efsta fjögurra vetra hryssna á FM á Austurlandi 1989 og hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á LM á Gaddstaðaflötum 2004. Vakning er undan Hrafni frá Holtsmúla og Snekkju frá Ketilsstöðum, sem gerir hana að hálfsystir Ljónslappar, móðir m.a Ljóna og Hlébarða. Ætt Snekkju er rekin í greininni um Ljóna og ætla ég að benda ykkur á að lesa það ef þið viljið fræðast eitthvað frekar.

Faðir Brimnis er  Álfasteinn frá Selfossi, eins og Ljóni, þannig að hér er um að ræða bræður af 3/4. En upplýsingar um Álfastein frá Selfossi koma líka fram í greininni um Ljóna og finnst mér engin þörf á að endurtaka þær hér.

Brimnir er mjúkur og rúmur alhliðahestur, þjáll og vel viljugur. Hann tamdist mjög vel og hefur allt gengið eins og í sögu, alltaf verið í stöðugri þróun.

Brimnir verður í Áskoti í Ásahreppi í sumar og umsjónarmaður hans er Jakob Þórarinsson s.8656356.

Fram að þvi að hann fer í girðingu, er han í húsnotkun hér hjá okkur í Syðri Gegnishólum.

Bergur s. 8954417 og Olil s.8972935

 

Sköpulag: 8,0  8,0  8,0  8,5  9,0  7,5  8,5  8,0.     8,28 

Hæfileika: 8,5  8,0  9,0  8,0  9,0  8,5  8,5  8,0  7,5.    8,56       Aðaleinkunn: 8,45.

126  i kynbótamat.

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_058  hafnarfj._26_mai10_021-1
   hafnarfj._28_mai_yfirlit_060

31
May 10

Gandálfur frá Sefossi er 6 vetra gamall, steingrár að lit með 8,39 í aðaleinkunn. Gandálfur er þriðji sonur Álfadísar frá Selfossi, en eldri bræður hans eru þeir Álfasteinn og Álfur. Álfadís er undan Adam frá Meðalfelli og Grýlu frá Stangarholti, en Grýla er undan Spurningu frá Kleifum sem var gjöf Jóhannesar á Kleifum heitins til okkar í Stangarholti þegar hún var 19 vetra gömul og tvítug eignaðist hún Grýlu, sem er undan Kolfinni frá Kjarnholtum. Spurning frá Kleifum er undan Dýrkinn frá Sauðafelli og Loga frá Kletti, en Logi frá Kletti er á bakvið mörg fræg  hross eins og t.d systkinin Væng og Ternu frá Kirkjubæ. Til gamans má geta að Gletta  frá Neðri Hrepp, Gustsdóttirin frá Hóli sem er með 8,36 i aðaleinkunn þ.a. 8, 85 fyrir hæfileika, er undan systurdóttir Grýlu, Vöku frá Kleifum. Síðan er Vaka  undan Degi frá Kjarnholtum sem er Kolfinnssonur frá Kjarnholtum og þar með hálfbróðir Grýlu.  Gandálfur og Gletta eru því ansi skyld og svolítið gaman að bera saman dóma þeirra, þvi dómarnir eru ansi svipaðir að mínu mati.

 

Faðir Gandálfs er Gustur frá Hóli en hann er sjálfur með há 1. verðlaun og með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Það er nú eitthvað sem flestir vita en hann er undan Gáska frá Hofsstöðum sem ætíð hefur verið í uppáhaldi hjá mér, en ég er alveg örugg á því að hans afkvæmi höfðu verið í allt öðrum málum í dag með breyttum tamningaraðferðum þar sem jafnvel er farið að forsendum hestsins  ( : 

Abba frá Gili, móðir Gusts á ættir sínar að reka til Hrafns frá Holtsmúla og Harðar frá Kolkuósi.

 

Gandálfur er léttbyggður, frekar langvaxin og vel gerður. Fjögurra vetra var hann ekki sterkur og lét lítið yfir sér, var þægur, elskulegur og samvinnufús en hafði ekki styrk til að taka út skrefið, hann var litli ljóti andarúnginn.

Til að kóróna það var hann að þjást af múkki meira eða minna þann vetur og setti það mikið strik í reikninginn.

Þegar hann var komin inn fimm vetra gamall var allt annað að sjá hann hann var orðið miklu öflugri og þar af leiðandi farin að ráða miklu betur við hreyfingarnar sínar, svo kom múkkið aftur og það hafði áhrif á alla þjálfunina, enda vall út úr honum gulur gröftur og fæturnir voru meira og minna bólgnir.

Þrátt fyrir það þjálfaðist hann þokkalega og til að koma honum í dóm var tekin snögg ákvörðun einn morguninn þegar ástandið var betra en ella og farið með hann í dóm, samt fékk hann aðeins 7,0 fyrir fótagerð og aðaleinkunina 8,19.

Í vetur hefur þjálfun tekist vel, klárinn verið stálsleginn í allan vetur og fæturnir þurrir og fínir enda fékk hann 8,0 fyrir fótagerð. Hann er að verða fjandi öflugur og verður bara skemmtilegri eftir þvi sem hann styrkist. Enda er hann geggjað rúmur og á mikið inni.

Gandálfur er rúmur, jafnvígur alhliðahestur, vel gerður, geðslagið er blítt og viljinn er mjög góður. 

 Gandálfur verður í Galtarholti í Borgarfirði í sumar og umsjónarmaður hans er Davíð Sigurðsson og hægt er að ná í hann í sima 8426469

Sköpulag : 7,5  8,0  8,0  8,0  8,0  8,0  9,0  7,0   8,08

Hæfileika:  8,5  9,0 8,5  8,5  9,0  8,5  8,0  8,0  8,0   8,60    Aðaleinkunn: 8,39.  

              123 i kynbótamat.

 

 hafnarfj.25_mai10_160 hafnarfj.25_mai10_173 
 hafnarfj.25_mai10_176  hafnarfj._28_mai_yfirlit_081

      Ljósmyndir: Gangmyllan

30
May 10

Nú ætla ég að byrja að kynna stóðhestanna okkar, en þeir koma reyndar allir fram undir ræktun/stóðhestar annarstaðar á heimasíðunni. Við ætlum að byrja á Ljóna frá Ketilsstöðum, en hann er 6 vetra,rauðskjóttur með 8,39 í aðaleinkunn. Hann er undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum en hún er með 8,28 í aðaleinkunn, þ.a 8,5 fyrir tölt og skeið og 9,0 fyrir brokk. Síðastliðið haust hlaut hún heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Ljónslöpp er undan Snekkju frá Ketilsstöðum, sem einnig var með 1. verðlaun og Snekkja var undan Rauðku en hún var með 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Rauðka var undan Ljónslöpp 1817, fædd 1939. Ekki finnst neinn kynbótadómur á henni, en hún vann gæðingakeppnina  á tveimur fjórðungsmótum fyrir austan og var annálaður gæðingur þess tíma.  Til gamans má geta að ættir allra Ketilsstaðahrossa má reka til þessarar hryssu.

 

Faðir Ljóna er Álfasteinn frá Selfossi, hann er með 8,54 í aðaleinunn, eins og staðan er í dag vantar Álfasteinn bara eitt afkvæmi til að fara í fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi, aðeins níu vetra gamall. Hann er með 126 stig í kynbótamati og allar líkur eru á því að hann myndi vera efstur fyrir afkvæmi á landsmótinu ef hann væri staddur hér á landi. Álfasteinn er undan Álfadísi frá Selfossi og Keili frá Miðsitju, en það eru líklega ættir sem flestir þekkja og ætti ekki að þurfa að rekja neitt frekar.

Ljóni er með 8, 44 fyrir byggingu, þar af 9,0 fyrir fótagerð og 9,5 fyrir hófa og geri aðrir betur, þvílíkur undirvagn, grínlaust hafa örugglega aðrir gert betur, en þetta er allavega sérstakt. Veikasti þátturinn íbygginguni er réttleikinn 6,5 en Bergur segir að það sé nauðsynlegt til að hann grípi ekki á sig  ( :  Enda hefur hann aldrei gripið á sig 7,9,13.

Ljóni er stór og fallegur hestur, frekar sterkvaxinn, jafnvígur alhliðahestur. Hann er mjög skrefstór með háar og mjúkar hreyfingar, geðslagið er hreint og viljinn góður.

Ljóni verður í Hjaltadal í Skagafirði í sumar, umsjónarmaður hans er Höskuldur Jensson á Nautabúi s.8941784.

Fram að því að hann fari norður er hann í húsnotkun hér hjá okkur í Syðri Gegnishólum.

Bergur s. 8954417  Olil s.  8972935.

Sköpulag: 7,5  8,5  8,0  8,5  9,0  6,5  9,5  8,0.    8,44

Hæfileika: 8,5  8,5  8,0  8,0 8,5  8,5  8,0  8,5   7,5   8,35   Samtals: 8,39

                    124 stig i kynbótamat.

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_072  hafnarfj._28_mai_yfirlit_073
 hafnarfj._26_mai10_033  hafnarfj._26_mai10_040
 Myndir: Gangmyllan  

 

29
May 10

Í gær var yfirlitssýning í Hafnarfirði og vorum við með alls níu stóðhestar þar, sjö í okkar eigu og tveir í eigu annarra. Erum við mjög ánæg með útkomuna, miðað við ástandið sem er á Islandi í dag. En það er nattúrlega háalvarlegt mál að hrossastofnin í heild sinni er veik og setti það auðvitad heilmikin svip á útkomu sýningarinnar. Margir hrossaræktundir komast ekki með hestanna í dóm vegna veikinda sem ekki er búið á sjá fyrir endann á. Við ákváðum að drifa sem flesta hesta í dóm ádur enn þeir veikjast, þvi veikin er enn ekki komin í hámarki hjá okkur. Þó að sex af þessum hestum hafi náð lágmarki inn á landsmót er alls óvíst hvort að þeir geta verið þar þvi að þeir eiga eftir að veikjast. sumir eru þó orðnir veikir, Mergur fékk ekki dóm vegna þess að hann hóstaði í dómi og Flugir sem er fimm vetra hóstar, enn hann var með 8,11 siðan i fyrra og er búinn að bæta sig töluvært siðann þá. Svo eru öll fjögurra vetra hrossin eftir að fara í dóm, margar hryssurnar eru veikar og það lítur alls ekki vel út þvi þær tapa svo verðmætum tíma núna. Tímin sem er svo mikilvægur. En hverning þetta fer er það tíminn sem verður að leiða í ljós.

En allavega gékk bara vel í gær og hestarnir hækkuðu sig hér og þar og eru flestir bara komnir með myndalega aðaleinkunn. Það er alltaf ljúf að uppskera eftr mikla vinnu og það gerðum við svo sannalega i gær. Liðið hérna hjá okkur stóð sig frábærlega, Max og Ása að gera hestanna tilbúna, Bergur reið fram og tilbaka, Jenný, Jannike, Brynja og Berglind að vídeo mynda og ljósmynda og koma upplysingar til min, en ég var út á brautarenda synendum til halds og trausts ef þeir þurftu einhverja aðstoð. Max endad siðan með þvi að sýna Vakar sem er

sjö vetra, en þá var Bergur búin að sýna alls átta hesta. Útkoman var þannig að Hrollur frá Margrétarhofi fékk í aðaleinkunn 7,84, Hvati frá Ketilsstöðum 8,03, Greipur frá Lönguhlíð 8,21, Hlébarði frá Ketilsstöðum 8,24, Vakar frá Ketilsstöðum 8, 25, Hugur frá Ketilsstöðum 8,29, Ljóni frá Ketilsstöðum 8,39, Gandálfur frá Selfossi 8,39 og Brimnir frá Ketilsstöðum fékk 8,45.  Ég birti mynd af öllum hestunum í þessari frétt en svo ætla ég að kynna þá hver og einn næstu daga,það helsta um dómin þeirra, ættir, hvar þeir verða o.fr.

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_hrollur1                Hrollur  hafnarfj._28_mai_yfirlit_066             Hvati
 hafnarfj._28_mai_yfirlit_023-1            Greipur  hafnarfj._28_mai_yfirlit_041           Hlébarði
                     hafnarfj._28_mai_yfirlit_093Vakar  hafnarfj._28_mai_yfirlit_049                Hugur
                    hafnarfj._28_mai_yfirlit_076Ljóni               hafnarfj._28_mai_yfirlit_081Gandálfur
                  hafnarfj._28_mai_yfirlit_058Brimnir  

27
May 10

Í dag var farið með tvo síðustu hestana í dóm en það var Hlébarði frá Ketilsstöðum undan Ljónslöpp og Aroni frá Strandarhöfða, 5 v. sem er okkar ræktun. Hlébarði og Bergur stóðu sig vel og hækkaði hann dóminn sinn mikið, úr 7,93 í 8,24 í aðaleinkunn. Hlébarði er litli bróðir Ljóna en þeir eru sammæðra og að okkar mati mjög efnilegur fimmgangari, hann fékk m.a. 9,0 fyrir hægt tölt, tölt, fet og prúðleika.

26
May 10

Jæja nú er allt of langt síðan við höfum skrifað fréttir og finnst okkur það mjög leitt en við erum búin að vera í vandræðum með administratorinn á heimasíðunni. En nú ætla ég að byrja að skrifa fréttir af stóðhestunum okkar og svo ætla ég smáum saman að skrifa um hitt og þetta sem er búið að gerast á því tímabili sem engar fréttir voru færðar.

Enn sem komið er, erum við búin að sýna átta stóðhesta og þar af eru sjö sem við eigum og höfum ræktað sjálf. Við byrjuðum á að sýna Hvata í gær og það var nú ekkert sérstaklega að gera sig eins og maður segir, hann fór úr 8,18 í 7,98 og lækkaði hann bæði fyrir byggingu og hæfileika. Við vorum reyndar sammála lækkuninni á byggingadómnum að hluta til, svo var það bara til að kóróna það að þetta var ekki hans besti dagur í reið.

Næstur var Vakar og hann stóð nokkurn veginn í stað þó hann hafi hækkað um heilann fyrir fet, fór úr 8,19 í 8, 17, en svona er nýja vægið og það er víst bara að bíta í það súra, "niður með klárhestana" andskotans stampar. Grínlaust var Vakar flottur og Max sýndi hann mjög vel og teljum við að það sé sóknarfæri á ýmsum stöðum, yfirlitið er jú eftir.

Loksins náði Gandálfur að sýna hver hann er, þvílíkur léttir. Hann hækkaði lítillega fyrir byggingu og töluvert fyrir hæfileika og fór úr 8,19 í 8,34 í aðaleinkunn, en hann er undan Gusti frá Hóli og Álfadísi frá Selfossi.

  Ása sýndi Merg sem er fimm vetra undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Musku frá Stangarholti að krafti og fór hann mjög vel hjá henni en hann hóstaði þegar þau voru að snúa við til að taka síðustu ferðina og þar með var enginn dómur.

Í dag byrjaði Bergur á að sýna Greip frá Lönguhlíð en hann er fimm vetra, bróðir gæðingshryssunnar Sædísar frá Stóra Sandfelli undan Keili fra Miðsitju og fékk hann 8,16 í aðaleinkunn.

 Næst var það Hugur en hann er fimm vetra undan Ör frá Ketilsstöðum og Hróð frá Refsstöðum. Hann hækkaði mikið, úr 7,93 í 8,29 sem að stórum hluta fólst í því að skeiðgírinn er kominn og hann hækkaði skeiðið úr 6,0 i 8,5. 

 Brimnir Álfasteinssonur 5 v. undan Vakningu frá Ketilsstöðum ,  lækkaði lítillega, úr 8,33 i 8,30 í aðaleinkunn, en hann lækkaði um einn heilann fyrir tölt en hann sýndi ekki nógu hægt tölt og og fékk 5,0 fyrir það og þar af leiðandi 7,5 fyrir tölt. Annars hækkaði hann skeiðið úr 8,5 í 9,0 og lækkaði fetið úr 9,0 í 8,5.

 Þá endaði Bergur daginn á að sýna hann Ljóna, 6 v. undan Álfasteini og Ljónslöpp og hann hækkaði úr 8,26  8,30 hækkaði byggingadóm úr 8,19 í 8,44 en lækkaði því miður fyrir skeið og fannst okkur það mjög svo óverðskuldað.

Á morgun er nýr dagur og ný tækifæri þá förum við með tvo stóðhesta til viðbótar og svo er jú yfirlitið á föstudaginn og það er alltaf spennandi.

         hahnarfj.25_og_27_mai10_001Hugur og Begur  hahnarfj.25_og_27_mai10_002
 hahnarfj.25_og_27_mai10_007        Vakar og Max  hahnarfj.25_og_27_mai10_005         Ljóni og Begur
        hahnarfj.25_og_27_mai10_003 Brimnir og Bergur  hahnarfj.25_og_27_mai10_004
     hahnarfj.25_og_27_mai10_008Gandálfur og Bergur  hahnarfj.25_og_27_mai10_009
         hahnarfj.25_og_27_mai10_010Mergur og Ása  001

23
Mar 10

 Síðastliðinn laugardag fengum við aftur heimsókn, en þá voru í vísindaferð félagar úr ræktunardeild Andvara.  Það var myndarlegur hópur, á milli 30 og 40 manns. Fyrst sýndum við þeim alla hestanna í hesthúsunum, ættir voru raktar og málin rædd. Á meðan Max og Ása hituðu upp Merg og Vakar í reiðhöllini, byggingadæmdu menn Amazon frá Ketilsstöðum og þar voru engar smá tölur á ferð, en það er efnilegur og fallegur foli á fjórða vetur, undan Natan Kolfinnssyni frá Ketilsstöðum og Orku frá Gautavík. Síðan voru Mergur frá Selfossi undan Musku frá Stangarholti og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Vakar frá Ketilsstöðum undan Vakningu frá Ketilsstöðum og Brjáni frá Reykjavík sýndir í reið, fyrst aðeins inni og svo úti.

Síðan sýndi Bergur þeim Ljóna frá Ketilsstöðum undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og Álfasteini frá Selfossi og svo endaði hann á að sýna Gandálf frá Selfossi undan Álfadísi frá Selfossi og Gusti frá Hóli. Þetta var hress og áhugasamur hópur og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.

 andvaramenn_mars10_002Verið að skoða Amazon.  andvaramenn_mars10_001
 andvaramenn10_008Bergur og Gandálfur.  andvaramenn_mars10_008Yfir-Andvarinn og fóstbróðir Bergs, Sveinn Gaukur Jónsson.
 andvaramenn10_007  andvaramenn_mars10_003         Bergur á Ljóna.
 andvaramenn10_006  andvaramenn10_005       Max á Vakari.

16
Mar 10

Enn og aftur var Julio Borba hér hjá okkur að kenna. Hann var hjá okkur í fimm daga og var það eins og alltaf lærdómríkt. Það fá færri en vilja að komast á námskeið til hans enda er hann mjög vinsæll í islandshestaheiminum um þessar mundir. Maðurinn er afburðar reiðmaður og reiðkennari og gaman að sjá hvað hann nálgast verkefnin af mikilli virðingu, það skiptir ekki máli hvort það er grunnatriði eða flóknar æfingar, hann er alltaf jafn einbeittur. Svo er heldur aldrei langt í húmórin, enda bráðnausynlegt að þetta haldist allt í hendur. Í þetta sinn fórum við  í meiri grunnvinnu og svo var líka farið í hringtaumsvinnu, m.a. með hliðartaumum og var það mjög athyglisvert að sjá hverning hann útfærði þessa vinnu, á annan hátt en við höfum séð hingað til. 

 borba_mars10_004      Julio og Kraflar borba_mars10_011 
 borba_mars10_012  borba_mars10_013Verið að kenna staðsetningu.
 borba_mars10_010  borba_mars10_017     Olil, Hafliði og Freyja
 borba_mars10_005        Hulda og Héðinn         borba_mars10_003Jakob Sigurðsson.
         borba_mars10_016Max, Mara og Elin  borba_mars10_002Við erum að tala um 5 háskólapróf !
 borba_mars10_001               Hafliði        borba_mars10_008Max og Aðaldís

07
Mar 10

Í gær laugardaginn 6 mars fengum við skemmtilega heimsókn,  en það var hrossaræktardeild Fáks og Limsfélagið sem lögðu land undir fót og komu í heimsókn hingað til okkar. Á að giska voru þetta 40-50 manns, hressir og skemmtilegir. Við sýndum við  þeim aðstöðuna okkar , farið var yfir ættir hrossana og svo enduðum við á því að sýna þeim 5 hesta í reið. Fyrst sýndum við þeim tvo fola á fjórða vetri, þá Amazon frá Ketilsstöðum undan Natan frá Ketilsstöðum og Orku frá Gautavík og Gram frá Syðri Gegnishólum, undan Musku frá Stangarholti og Sveini Hervari frá Þúfu. Það eru efnilegir en ekki mikið gerðir folar. Svo sýndum við þeim Merg frá Selfossi sammæðra Gram en undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Hlébarða fra Ketilsstöðum undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og Aron frá Strandarhöfða báðir á fimmta vetri. Síðan enduðum við á að sýna þeim Kraflar fra Ketilsstöðum sem er orðinn mikið gerður hestur. þetta endaði svo í þriggja tíma heimsókn og var hin skemmtilegasta í alla staði og þökkum við þeim fáksfélögum og Limsfélögum kærlega fyrir komuna.

 

 kraflarmars_003  Hrossaræktardeild Fáks og Limsfélagið.
 Verið að skoða þá Amazon og Gram.  kraflarmars_009
 kraflarmars_004  Ása á Merg og Bergur á Hlébarða.
 Bergur og Hlébarði.  kraflarmars_006
 kraflarmars_005  Ása og Mergur.
 Olil og Kraflar.  kraflarmars_001
 kraflarmars_008  kraflarmars_007
 Verið að skoða Amazon  kraflarmars_002

03
Mar 10
Eitthvað er ég vísst búin að standa mig illa í fréttafluttningi undanfarið, það er búið að vera svo mikið að gera i reiðkennslu og útreiðum. En hér ar allt gott að frétta og gengur bara vel að þjálfa og temja. Við erum  með töluvert af ungum hrossum og eru mörg þeirra bæði skemmtileg og efnileg. Hér koma nokkrar myndir sem við erum búin að taka undanfarna daga. 
 mars10_011

 Mara og Liljadís frá Fosshofi á fjórða vetur,

undan Lilju frá Litla Kambi

og Álfasteini frá Selfossi.

 Ása og Mergur frá Selfossi, á

fimmta vetur undan Musku

frá Stangarholti og Gígjari frá

Auðsholtshjáleigu.

 

 

 mergur_og_co.feb.10_001
 mergur_og_co.feb.10_002-1

 Sandra og Sirkus frá

 Selfossi á fimmta vetur, undan Grýlu frá Stangarholti og Sæla frá

Holtsmúla.

 Bergur og Gandalfur frá Selfossi á sjöttavetri, undan Álfadísi fra Selfossi og Gusti frá Hóli.  mergur_og_co.feb.10_006
 mars10_013  Max og Gramur frá Selfossi á fjórða vetri, undan Musku frá Stangarholti og Sveini Hervari frá Þúfu.
 Olil og Heilladís frá Selfossi á fimmta vetri, undan Álfadísi frá Selfossi og Suðra frá Holtsmúla.  mergur_og_co.feb.10_004
 mars10_009  Ása og Reisn frá Ketilsstöðum á fjórða vetri, undan Brá frá Ketilsstöðum og Leikni frá Vakursstöðum.
 Olil og Vestri frá Hellubæ á fimmta vetri, undan Vöku frá Hellubæ og Suðra frá Holtsmúla.  mergur_og_co.feb.10_007
 mars10_007  Mara á Brunni frá Feti á fjórða vetri, undan Golu frá Höfðabrekku og Skrúði frá Litla landi.
 Dexi, nýkomin frá Sviþjóð, er alveg að fíla sig á Islandi.  mars10_003
 mars10_002  Ása og Lúsia frá Fosshofi á fjórða vetri, undan Lenju frá Fosshofi og Sæsyni frá Ármóti.
 Hugur frá Ketilsstöðum á fimmta vetri, undan Ör frá Ketilsstöðum og Hróð frá Refsstöðum.  mars10_010
 mars10_005  Vakar á Sjöunda vetri undan Vakningu frá Ketilsstöðum og Brjáni frá Reykjavik.
 Svo fengu stóðhestarnir heimsókn, smyrill sem flúði snjónum og kuldanum.  mars10_015
   
   

28
Jan 10

Var með námskeiði Noregi fyrir stuttu síðan,en þar er nýbúið mikið kuldakast. Svo kalt var að við vorum að velta þvi fyrir okkur að hætta við námskeiðið. En vegna batnanði veðurspár um helgina ávkváðum við að reyna á það. Ég fór í búð og keypti allt það hlýasta sem í boði var, þannig að á laugardagsmorgunin hóf ég kennsluna í tvöföldum síðum innanundir vetrar reiðbuksunum , í sex lögum af mismunandi peysum og úlpum, tvöföldum þæfðum vettlingum og með rafhitun í skónum. Eins og svo oft áður fór spáinn ekki eftir og var frostið frá -22 niður í -32 stig.  Það var  alveg ótrúlegt hversu vel þetta gekk, hestarnir létu ekkert á sig fá og ég slapp mjög vel frá þessu líka. Það er nánast eins og norska máltækið hafi sannað sig " det finns ikke dårlir vær, det finns bare dårlige klær ". Í beinni þýðingu, það er ekki til vont veður, bara vondur klæðnaður. nskei_noregi10_001

 

 

 

I frostinu mikla, frá vinstri Gry Hagelund og Galdur frá Auðsholtshjaleigu, Freyja Amble Gísladóttir og Gormur frá Selfossi, Elin Holst og Hlekkur frá Hofi og ég.                                                             

Select language by flag

Til Sölu

Hilbar Katla hnakkur

We have 37 guests and no members online