Sónarskoðanir og tilheyrandi aðgerðir eru hluti af daglegri vinnu á þessum bæ, gott að fá aðstoð.
{gallery}Sonarskodanir 2019{/gallery}
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum er hér í úrslitum í fimmgangi á Íslandmeistaramótinu 2019.
Mynd: Jón Björnsson
{gallery}Alfarinn Islandsmeistari fimmgangs 2019{/gallery}
Maður fyllist þakklæti, ótrúlega er þetta gaman. Íslandsmeistari í 5 gangi 2019. Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum og Olil Amble.
{gallery}Islandsmeistarar fimmgangs 2019{/gallery}
Þessir tveir stóðu sig vel í dag, 7,40 og fyrsta sætið fyrir utan úrslit í mjög svo sterkri keppni á íslandsmótínu í T1 tölti. Þeirra lang flottasta sýning til þessa, þetta lofar góðu.
{gallery}Bergur Alfgrimur in T1 Icelandic Championship 2019{/gallery}
Þetta myndarfolald fæddist í gær 4 júlí. Móðir þess er Djörfung Álfasteinsdóttir frá Ketilsstöðum. Djörfung var hæsta heiðursverðlaunahryssan í fyrra og er þriðja hryssan í röð í beinan kvenlegg að ná þessari heiðursviðurkenningu en móðir hennar er Framkvæmd og amma Hugmynd frá Ketilsstöðum. Faðir folaldsins er Arður frá Brautarholti sem einnig, eins og faðir sinn Orri, er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, þannig væntingarnar eru einhverjar.
{gallery}Djorfung kostud 2019{/gallery}
Við erum að keppa á Íslandsmótínu í Viðidal þessa daganna og höfum unnið okkur þáttökurétt í tveimur A úrslítum á Sunnudag. Okkur Álfarni gékk mjög vel í forkeppni í 5 gangi F1 og hlutum heila 7,77 fyrir og leiðum í mjög svo sterkri keppni.
Elin og Frami hlutu 7,57 í forkeppni í 4 gangi 4.1 og eru í deildu 4 sæti, þau keppa í Tölti T1 á morgun ásamt Bergi og Álfgrími.
{gallery}Islandsmotid 2019{/gallery}
Sonur Silfurtáar Suðradóttur og Frama frá Ketilsstöðum fæddist 20. maí.
{gallery}Son of Silfurta and Frami{/gallery}
Myndataka hefur verið í gangi enda frábærar aðstæður til þess.
{gallery}Myndataka 2019{/gallery}
þetta var ljúft svo ég segi ekki meira. Við Álfarinn sigruðum 5 ganginn F1 á Reykjavíkurmeistaramótínu, 7,33/7,88. This was great, Álfarinn won the 5 Gait F1 on the Reykjavík Championship 7,33/ 7,88.
{gallery}Islandsmeistarar 2019{/gallery}
Þessi mynd af Álfgrími frá Syðri-Gegnishólum var tekin þegar hann tók þátt í Tölti T1 á Reykjavíkurmeistaramótínu,
{gallery}Alfgrimur RVmot 2019{/gallery}
Frábær dagur fyrir garðvinnu, Krúsilius (okkar Hreinræktaða Íslenska Götublanda) og Álfarinn voru meira en til í að aðstoða okkur Esther.
{gallery}Gardvinna 2019{/gallery}
Þessi mamma hefði engan áhuga á að syna okkur nýfædda afkvæmið sitt, bara alls ekki. En brúnn hestur er það, móðir er Stemmning frá Ketilsstöðum og faðir Frægur frá Strandarhöfði.
{gallery}Stemmning son 2019{/gallery}
Falleg birtan í gærkvöldi þegar við komum heim frá Reykjavíkurmeistara mótinu þannig að ég varð að taka þessa mynd og nokkrar til viðbótar.
{gallery}falleg birta 21 juni 2019{/gallery}
Þessi mynd var tekin í dag, þegar Elin var að keppa á Frama í 4 gangi V1, aðaleinkunn 7,47. Deilt þriðja sæti er það og A-úrslit á Reykjavíkurmeistaramótinu á sunnudag.
{gallery}Elin og Frami Rkvm mot 2019{/gallery}
Álfarinn á Reykjavíkurmeistaramótinu, í forkeppni í 5 gangi 7,33. Þetta er hæsta forkeppnis einkunn sem við höfum hlotið. Úrslit á sunnudag.
{gallery}Alfarinn RMmotid 2019{/gallery}
Það verður spennandi að sjá hvað fæðist undan þessum tveimur á næsta ári. Huldumær frá Syðri-Gegnishólum og Ljúfum frá Torfunesi en Ljúfur var einn af þeim hestum sem ég hreifst verulega af á ný afstaðinni kynbótasýningu í Spretti. Fyrir söfnunnargetu og hverning hann notaði hálsinn og frampartinn.
{gallery}Huldumaer og Ljufur 2019{/gallery}
Hún er einstök þessi hryssa ❤️ hún á einn son, tvo sona syni og einn sonar sonar son í A-úrslitum í 5 gangi á Rekjavúkurmeistaramótinu. Álfadís frá Selfossi í sumarnóttinni, með henni á myndinni er sonur hennar fæddur 2019, faðir er Arður frá Brautarholti.
{gallery}Alfadis mother of many 2019{/gallery}
Þetta háfætta merfolald fæddist 12. júni og er undan Gráhildi frá Selfossi og Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum. Gráhildur, sem er undan Musku frá Stangarholti og Randver frá Nýja-Bæ, hlaut 8,12 í aðaleinkunn sem klárhryssa 5 vetra gömul, þ.a. 9,0 fyrir tölt,brokk, fegurð í reið og vilja.
{gallery}Grahildur filly 2019{/gallery}
Ungu hryssurnar á leið heim í hesthús, vinna framundan.
{gallery}Ungmerar reknar heim 2019{/gallery}
Fallegur dagur á enda runnninn og dalalæðan leggst yfir landið, þessi mynd var tekin í stóðinu okkar fyrir nokkrum dögum.
{gallery}Ljosaskipti juni 2019{/gallery}