Brynja og Goði lentu í 3. sæti í páskatölti Sleipnis síðastliðið miðvikudagskvöld. Við óskum sigurvegaranum, Eggerti Helgasyni innilega til hamingju með sigurinn en hann keppti á hesti sínum Stúfi frá Kjarri.
{gallery}Brynja og Godi Paskatolt 2019{/gallery}
Verið að snyrta og klippa hófa í fyrsta sinn, enda verið að undirbúa Álfadísi og dótturina Álfaborgu fyrir Stóðhestaveisluna í Sprettshöllinni. Álfaborg er undan Stála frá Kjarri.
{gallery}hofaklipping i fyrsta sinn 2019{/gallery}
Elin Holt á Frama frá Ketilsstöðum á ræktunarbússýningunni okkar Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar á Stóðhestaveislan á laugardagskvöldið. móðir er Framkvæmd frá Ketilsstöðum og faðir Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum.
{gallery}Elin og Frami Stodhestaveisla 2019{/gallery}
Bergur Jónsson og Glampi frá Ketilsstöðum á ræktunarbús sýningunni Stóðhestaveisla í Sprettshöllinni, Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar á laugardagskvöldið. Móðir er Ör frá Ketilsstöðum og faðir Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum.
{gallery}Bergur og Glampi Stodhestaveisla 2019{/gallery}
Brynja Amble Gisladottir og Goði frá Ketilsstöðum í ræktunarbússýningu Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar á stóðhestaveislunni á laugardagskvöldið. Móðir Vænting frá Ketilsstöðum og faðir Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum.
{gallery}Brynja og Godi Stodhestaveisla 2019{/gallery}
Álfgrímur frá Syðri- Gegnishólum í Álfadísar sýningunni á Stóðhestaveislunni síðastliðið laugardagskvöld. Faðir er Orri frá Þúfu og knapi Bergur Jónsson.
{gallery}Bergur og Alfgrimur april 2019{/gallery}
Í gærkvöldi var Álfadís frá Selfossi heiðruð á Stóðhestaveislunni í Samskipahöllinni, Spretti. Virkilega skemmtillegt og erum við óhemju hamingjusöm og stolt yfir að hafa fegið að eiga og ráðstafa þessari hryssu, það er miklu meira en lóttó vinningur. Hún mætti að sjálfsögðu á staðinn yfirveguð og stolt. Meðan hún stóð í miðjunni með dóttur sinni dönsuðu börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin í kringum hana 12 talsins. Takk Hjörvar Ágústsson fyrir að skilja mig og hjálpa mér við að setja þessa frásögn í ævintýraform. Þegar ég fékk þessi fallegu skilaboð í morgun skildi ég að mér hefði tekist að koma sögu Álfadísar á framfæri eins og mig langaði.
"Hæ hæ
Langar að fá að þakka ykkur Bergi fyrir ótrúlega magnþrungið atriði með hana Álfadís í gærkvöldi. Algjörlega frábær uppsetning og svo mikil gæði í þessu öllu hjá ykkur. Þessi saga ykkar og Álfadísar er eitthvað sem verður ekki jafnað segi ég. Takk fyrir að koma með hana og lofa okkur hinum að eiga þessa stund með ykkur.
Þakklætiskveðjur til ykkar allra."
{gallery}Alfadis offspring show Sprettshollin 2019{/gallery}
Daníel Jónson og Fjara frá Horni sem er undan Álfarni frá Syðri-Gegnishólum og Sara Lundberg á Bylgju frá Ketilsstöðum undan Álfasteini frá Selfossi. Myndirnar eru frá heiðurssýningu Álfadísar sl Laugardag. Álfarinn og Álfasteinn eru albræður.
{gallery}Fjara fra Horni{/gallery}
Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum 5 vetra undan Lord frá Vatnsleysu fylgdi mömmu sinni, Álfadísi frá Selfossi, þegar hún var heiðruð í Stóðhestaveisluna í Sprettshöllinni síðastliðið laugardagskvöld. Þessi mynd var tekin við það tilefni, knapi Olil Amble.
{gallery}Ljosalfur sprettsholl 2019{/gallery}
Við óskum Jakob Svavar Sigurðsson innilega til hamingju með sigurinn í einstaklings keppni Meistaradeildar Cintamani í hestaíþróttum 2019.
{gallery}MD sigurvegari einstaklingskeppni 2019{/gallery}
Við óskum Hrimnir Export hesta innilega til hamingju með að vinna liðakeppnina. Vel gert, Glæsilegt það!
{gallery}Vinningslid MD 2019{/gallery}
Meistaradeild Cintamani 2019 er lokið, Elin og Frami náðu loksins að sanna að Frami á heima í hópi bestu töltara landsins. Þau kepptu í fjórum greinum og riðu þrenn úrslit sem setti Elin í fjórða sæti í einstaklingskeppninni. Gangmyllan var í 4. sæti í liðakeppninni með þrjá knapa á topp tíu í einstaklingskeppninni. Sigurður Sigurðarson komst í sjöunda sæti í flugskeiðinu á timanum 6,02.
{gallery}MD 2019 lokid{/gallery}
Bergur lenti í öðru sæti í gæðingaskeiði á Vör frá Ármóti og Sigurður Sigurðarson á Drift frá Hafteinsstöðum lenti í fjórða sæti í 150 m. pace skeiði í Meistaradeildinni í dag. Þegar maður er ekki á staðnum þarf að notast við sjónvarps upptökur til að ná myndum.
{gallery}MD pace test 2019{/gallery}
Veðrið lítur vel út í dag en lítið á þessa ungu hryssu, hún er tortryggin enda ástæða til. Ef litið er á dökku skýin sést að ekki er ráðlegt, þrátt fyrir sólskin, að ríða úti í dag nema taka áhættu á að lenda í hagléli. Ísland í dag og við elskum það.
{gallery}Rysjott vedur{/gallery}
Elin og Frami unnu Gæðingafimi meistaradeildar í ár!
{gallery}Elin Frami Gaedingafimi 2019{/gallery}
Þvílikt kvöld, þetta var virkilega gaman, við náðum í 1. 3. og 4. sætið í Gæðingafimi Meistaradeildarinnar 2019. Læt fylgja mynd sem tekin var eftir keppnina. Liðabikarinn féll í okkur einnig í skaut. Með á myndinni er reiðkennarinn okkar til margra ára, Júlio Borba.
{gallery}Gaedingafimi 2019{/gallery}
Á leið til Reykjavíkur að keppa í Gæðingafimi Meistaradeildarinnar, stemmningin er góð.
{gallery}On our way to compete 2019{/gallery}
Það er hrikalega gott að velta sér í hreinni Furuflís.
Gæðingafimin verður á fimmtudaginn, Bergur og Glampi í undirbúningi.
{gallery}Preparing for Gaedingafimi 2019{/gallery}
Þessi stúlka vann hjá okkur í fyrra, alvöru stelpa og hesturinn er oft búinn að keppa fyrir okkar lið. Ásdís Ósk og Hrappur frá Sauðárkróki, voru auðvitað í verðlauna sæti í Suðurlandsdeildinni.
{gallery}AsdisOgHrappur2019{/gallery}