30
May 10

Nú ætla ég að byrja að kynna stóðhestanna okkar, en þeir koma reyndar allir fram undir ræktun/stóðhestar annarstaðar á heimasíðunni. Við ætlum að byrja á Ljóna frá Ketilsstöðum, en hann er 7 vetra,rauðskjóttur með 8,39 í aðaleinkunn. Hann er undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum en hún er með 8,28 í aðaleinkunn, þ.a 8,5 fyrir tölt og skeið og 9,0 fyrir brokk. Síðastliðið haust hlaut hún heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Ljónslöpp er undan Snekkju frá Ketilsstöðum, sem einnig var með 1. verðlaun og Snekkja var undan Rauðku en hún var með 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Rauðka var undan Ljónslöpp 1817, fædd 1939. Ekki finnst neinn kynbótadómur á henni, en hún vann gæðingakeppnina  á tveimur fjórðungsmótum fyrir austan og var annálaður gæðingur þess tíma.  Til gamans má geta að ættir allra Ketilsstaðahrossa má reka til þessarar hryssu.

 

Faðir Ljóna er Álfasteinn frá Selfossi, hann er með 8,54 í aðaleinunn, eins og staðan er í dag vantar Álfasteinn bara eitt afkvæmi til að fara í fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi, aðeins níu vetra gamall. Hann er með 126 stig í kynbótamati og allar líkur eru á því að hann myndi vera efstur fyrir afkvæmi á landsmótinu ef hann væri staddur hér á landi. Álfasteinn er undan Álfadísi frá Selfossi og Keili frá Miðsitju, en það eru líklega ættir sem flestir þekkja og ætti ekki að þurfa að rekja neitt frekar.

Ljóni er með 8, 44 fyrir byggingu, þar af 9,0 fyrir fótagerð og 9,5 fyrir hófa og geri aðrir betur, þvílíkur undirvagn, grínlaust hafa örugglega aðrir gert betur, en þetta er allavega sérstakt. Veikasti þátturinn íbygginguni er réttleikinn 6,5 en Bergur segir að það sé nauðsynlegt til að hann grípi ekki á sig  ( :  Enda hefur hann aldrei gripið á sig 7,9,13.

Ljóni er stór og fallegur hestur, frekar sterkvaxinn, jafnvígur alhliðahestur. Hann er mjög skrefstór með háar og mjúkar hreyfingar, geðslagið er hreint og viljinn góður.

Sköpulag: 7,5  8,5  8,0  8,5  9,0  6,5  9,5  8,0.    8,44

Hæfileika: 8,5  8,5  8,0  8,0 8,5  8,5  8,0  8,5   7,5   8,35   Samtals: 8,39

                    122 stig i kynbótamat.

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_072  hafnarfj._28_mai_yfirlit_073
 hafnarfj._26_mai10_033  hafnarfj._26_mai10_040
 Myndir: Gangmyllan