31
May 10

Gandálfur frá Sefossi er 7 vetra gamall, steingrár að lit með 8,39 í aðaleinkunn. Gandálfur er þriðji sonur Álfadísar frá Selfossi, en eldri bræður hans eru þeir Álfasteinn og Álfur. Álfadís er undan Adam frá Meðalfelli og Grýlu frá Stangarholti, en Grýla er undan Spurningu frá Kleifum sem var gjöf Jóhannesar á Kleifum heitins til okkar í Stangarholti þegar hún var 19 vetra gömul og tvítug eignaðist hún Grýlu, sem er undan Kolfinni frá Kjarnholtum. Spurning frá Kleifum er undan Dýrkinn frá Sauðafelli og Loga frá Kletti, en Logi frá Kletti er á bakvið mörg fræg  hross eins og t.d systkinin Væng og Ternu frá Kirkjubæ. Til gamans má geta að Gletta  frá Neðri Hrepp, Gustsdóttirin frá Hóli sem er með 8,36 i aðaleinkunn þ.a. 8, 85 fyrir hæfileika, er undan systurdóttir Grýlu, Vöku frá Kleifum. Síðan er Vaka  undan Degi frá Kjarnholtum sem er Kolfinnssonur frá Kjarnholtum og þar með hálfbróðir Grýlu.  Gandálfur og Gletta eru því ansi skyld og svolítið gaman að bera saman dóma þeirra, þvi dómarnir eru ansi svipaðir að mínu mati.

 

Faðir Gandálfs er Gustur frá Hóli en hann er sjálfur með há 1. verðlaun og með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Það er nú eitthvað sem flestir vita en hann er undan Gáska frá Hofsstöðum sem ætíð hefur verið í uppáhaldi hjá mér, en ég er alveg örugg á því að hans afkvæmi höfðu verið í allt öðrum málum í dag með breyttum tamningaraðferðum þar sem jafnvel er farið að forsendum hestsins  ( : 

Abba frá Gili, móðir Gusts á ættir sínar að reka til Hrafns frá Holtsmúla og Harðar frá Kolkuósi.

 

Gandálfur er léttbyggður, frekar langvaxin og vel gerður. Fjögurra vetra var hann ekki sterkur og lét lítið yfir sér, var þægur, elskulegur og samvinnufús en hafði ekki styrk til að taka út skrefið, hann var litli ljóti andarúnginn.

Til að kóróna það var hann að þjást af múkki meira eða minna þann vetur og setti það mikið strik í reikninginn.

Þegar hann var komin inn fimm vetra gamall var allt annað að sjá hann hann var orðið miklu öflugri og þar af leiðandi farin að ráða miklu betur við hreyfingarnar sínar, svo kom múkkið aftur og það hafði áhrif á alla þjálfunina, enda vall út úr honum gulur gröftur og fæturnir voru meira og minna bólgnir.

Þrátt fyrir það þjálfaðist hann þokkalega og til að koma honum í dóm var tekin snögg ákvörðun einn morguninn þegar ástandið var betra en ella og farið með hann í dóm, samt fékk hann aðeins 7,0 fyrir fótagerð og aðaleinkunina 8,19.

Í vetur hefur þjálfun tekist vel, klárinn verið stálsleginn í allan vetur og fæturnir þurrir og fínir enda fékk hann 8,0 fyrir fótagerð. Hann er að verða fjandi öflugur og verður bara skemmtilegri eftir þvi sem hann styrkist. Enda er hann geggjað rúmur og á mikið inni.

Gandálfur er rúmur, jafnvígur alhliðahestur, vel gerður, geðslagið er blítt og viljinn er mjög góður. 

 Sköpulag : 7,5  8,0  8,0  8,0  8,0  8,0  9,0  7,0   8,08

Hæfileika:  8,5  9,0 8,5  8,5  9,0  8,5  8,0  8,0  8,0   8,60    Aðaleinkunn: 8,39.  

              125 i kynbótamat.

 

 hafnarfj.25_mai10_160 hafnarfj.25_mai10_173 
 hafnarfj.25_mai10_176  hafnarfj._28_mai_yfirlit_081

      Ljósmyndir: Gangmyllan