31
May 10

Brimnir frá Ketilsstöðum er 6 vetra gamall, bleikálóttur að lit með 8, 45 í aðaleinkunn. Hann er undan Vakningu frá Ketilsstöðum sem er með 1.verðlaun og var efsta fjögurra vetra hryssna á FM á Austurlandi 1989 og hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á LM á Gaddstaðaflötum 2004. Vakning er undan Hrafni frá Holtsmúla og Snekkju frá Ketilsstöðum, sem gerir hana að hálfsystir Ljónslappar, móðir m.a Ljóna og Hlébarða. Ætt Snekkju er rekin í greininni um Ljóna og ætla ég að benda ykkur á að lesa það ef þið viljið fræðast eitthvað frekar.

Faðir Brimnis er  Álfasteinn frá Selfossi, eins og Ljóni, þannig að hér er um að ræða bræður af 3/4. En upplýsingar um Álfastein frá Selfossi koma líka fram í greininni um Ljóna og finnst mér engin þörf á að endurtaka þær hér.

Brimnir er mjúkur og rúmur alhliðahestur, þjáll og vel viljugur. Hann tamdist mjög vel og hefur allt gengið eins og í sögu, alltaf verið í stöðugri þróun.

 

 

Sköpulag: 8,0  8,0  8,0  8,5  9,0  7,5  8,5  8,0.     8,28 

Hæfileika: 8,5  8,0  9,0  8,0  9,0  8,5  8,5  8,0  7,5.    8,56       Aðaleinkunn: 8,45.

125  i kynbótamat.

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_058  hafnarfj._26_mai10_021-1
   hafnarfj._28_mai_yfirlit_060