04
Jun 10

natanjeNatan frá Ketilsstöðum er 10 vetra gamall, jarpur með aðaleinkunn 8,40. Hann er sonur Kolfinns frá Kjarnholtum og Væntingar frá Ketilsstöðum. Vænting er 1. verðlauna hryssa undan Hugmynd frá Ketilsstöðum og Toppi frá Eyjólfsstöðum, sem gerir hana að systir Framkvæmdar en um hana skrifaði ég i greinina um Hug frá Ketilsstöðum. En vert er að taka fram að Hugmynd frá Ketilsstöðum var með 1.verðlaun, heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og var i sjötta sæti á LM´90 á Vindheimamelum i A flokki. Vænting er siðan undan Toppi frá Eyjólfsstöðum, sem var gullfallegur hestur með 8,53 fyrir sköpulag, 8,39 fyrir hæfileika og samtals 8,46 aðeins fimm vetra gamall. Það eru nú engar smá tölur og geri aðrir betur, en i minum huga er það sem ég man best eftir, "hormona sjokkið" fræga. En grínlaust var Toppur frábærlega ættaður, undan gæðingshryssuní Seru frá Eyjólfsstöðum, en húnvar öðru sæti i flokki 6 vetra og eldri á LM´82 á Vindheimamelum með 8,26 i aðaleinkunn, þ.a 8,0 stökk og skeið, 8,5 fyrir tölt, geðslag, fegurð i reið og 9,0 fyrir brokk og vilja. Bergur segir mér að hún sé einn mesti gæðingur sem hann hefur verið með. Faðir Topps var Hrafn 802 frá Holtsmúla, en hann þarf nú ekkert frekar að minnast á, hann þekkja allir. Það þýðir ekki að rifast um hann, hann sannaði sig einfaldlega.

Faðir Natans er Kolfinnur frá Kjarnholtum, sem var undan Hrafni frá Holtsmúla og Glókollu frá Kjarnholtum. Kolfinnur var með efstur stóðhesta i flokki 6 vetra og eldri á LM´90 með 8, 45 1 aðaleinkunn. Hann fékk 9,0 fyrir tölt og brokk og 9,5 fyrir skeið, en aðeins 8,5 fyrir vilja og 8,5 fyrir geðslag. Sem ég ætla að leyfa mér að segja að hafi verið fáranlegar einkunnir og algerlega úr takt við einkunninar sem hesturinn fékk fyrir tölt, brokk og skeið. Hesturinn var einn rýmsti hestur allra tima, hann var ekki flottasti hesturinn á hægu, en hann var hreinn og mjúkur  og þegar stígið var á bensingjöfina var alltaf svarað undir eins, hann var eins og hugur manns. með fullri virðingu fyrir öllum þeim frábæru gæðingum sem ég hef verið svo heppin að fá að þjálfa eða komist á bak á er og var hann einfaldlega sá besti. Talandi um vilja og geðslag, hann rótaðist áfram, 400 metra á kappreiðavellinum á Hellu var eins og að drekka vatn, fram og tibaka, tölt, brokk, skeið, alltaf þjáll,hvað viljum við meira?? Það þarf vilja og geðslag likamlegan styrk til að gera svona lagað en það er einmitt likamlegi styrkurinn sem getur ruglað fyrir. Hestar með þetta ganglag þurfa undantekningalitið nokkur ár til að ná styrk og þá verður umtalið að þeir eru seinir til......Hann var ekki svona þegar hann var fjögurra vetra, nei það er eðlilegt, það er fyrst þegar hestur eldist að hann geti gert svona lagað, en eitt er víst að hestur sem afrekar svona eins og hann gerði aftur og aftur, þá er viljinn eins og best er á kosið, hvernig sem hann var þegar hann var yngri. Best að hætta að skrifa um Kolfinn núna, ég finn að ég gæti auðveldlega skrifað um hann heila bók. Móðir Kolfinns var Glókolla frá Kjarnholtum, en hún var með 7,61 i aðaleinkunn. En eitthvað var meira i þessari meri, þvi hún hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og af þeim fimmtán afkvæmum sem hún átti voru þrettán dæmd og meðaleinkunn þeirra er 8,01.

Natan varð fyrir miklu slysi þegar hann var veturgamall er han sleit sin á afturfæti og var það vegna þráhyggju Björns Steinbjörnssonar dýralæknis að han var ekki felldur. Hann og Jón heitinn Bergsson hjúkruðu honum í á annað ár þar til Súsí dyralæknir tók við  þegar hann kom til tamningar hjá okkur á  Selfoss. Hanvar taminn á fjórða vetur en við urðum að hætta þvi han var með sýkingu i beininu svo sárið gréri aldrei alveg. Á fimmta vetur gekk vel og var hann  sýndur í kynbótadóm um vorið þar sem hann fékk 8, 40 í aðaleinkunn. Eftir á að hyggja hefðum við átt að láta staðar numið þar því þó að hægt væri að ríða honum og hann fékk glæsilegan dóm var hann ekki alveg heill, það er að segja hann gat safnað sér saman en ekki teygt almennilega úr fætinum á ferð þannig að hann var t.d alltaf ójafn á skeiði og greinilegt að hann fór að hlífa fætinum því meira sem við reyndum að teygja úr honum. En það er alltaf gott að vera vitur eftirá  en í hita leiksins hélt maður bara að það myndi ganga upp, það var svo fjandi mikið meira i honum.

Natan er léttbyggður og  háfættur alhliðahestur með mjúkar og góðar hreyfingar. Ég held að hann hefði getað orðið mjög rúmur á öllum gangi. Hann er með háttsettan háls, á auðvelt með að safna sér saman og ganga vel á hægu og er ótrúlega góður reiðhestur.

Sköpulag: 8,5  8,0  8,0  9,0  7,5  8,0  8,5  8,0   8,23

Hæfileika: 9,0  8,5  7,5  8,0  8,5  9,0  8,0  8,0  7,5   8,51     Aðaleinkunn: 8,40. 

119 stig i kynbótamat. 

 ljni_og_amazon_jn10_009Tvö afkvæmi Natans. Amazon 4 v. undan Orku frá Gautavík.ljni_og_amazon_jn10_001 
 ljni_og_amazon_jn10_022Amazon og Ása i apríl 2010.  glei10_001Gleði 1.v undan Kolbrá frá Miðsitju.