17
Jan 12

Jæja, þá er komið mið janúar og allt gott að frétta héðan. Veturinn er búinn að vera erfiður sem komið er, mikill snjór og hálka og ekki batnar þetta þegar þetta er svo blandað með rigningu og roki með jöfnu millibili. Tamningar og þjálfun ganga vel enda erum við með reiðhöll og þrjár ofurduglegar stelpur í vinnu, Elinu Holst, Ester Kapinga og Henna Johanna Sirén.

 Við erum við með rúmlega fimmtíu hross á húsi sem flest eru í okkar eigu. Það er mikið af ungum hryssum þetta árið, eitthvað af yngri stóðhestum, eldri stóðhestar og örfáa geldinga. Mikið er af efnilegum hrossum enda eru þau öll vel ættuð og verður gaman að sjá hverning þau þróast á næstunni, enda mikið ár framundan, landsmót í Reykjavík og margt fleira.

Eins og vanalega kemur Julio Borba reglulega til okkar til að kenna okkur og er hann nýbúinn að vera hjá okkur og var það eins og venjulega tær snilld. Hann er sérstaklega hugmyndaríkur og er ofurfljótur að lesa hesta og knapa. Það voru mörg gullkornin sem komu upp úr honum eins og venjulega eins og t.d að markmiðið er að sjá alvarlegan hest og brosandi knapa hinsvegar er máliið orðið háalvarlegt þegar knapinn er alvarlegur en hesturinn brosir.

Birti hér mynd sem var tekin af okkur á námskeiðinu.

 F.v. Olil, Elin, Ester, Julio, Henna og BergurF.v. Olil, Elin, Ester, Julio, Henna og Bergur