28
Oct 11
 

Var að fá þessar skemmtilegu fréttir af Hvata, en hann tók þátt í sinni fyrstu keppni um helgina með nýja
eiganda sínum henni Eileen Ma.

Ásta Covert skrifaði okkur eftirfarandi:

 

  "Það gekk alveg svakalega vel hjá Eileen með Hvata um helgina en þau voru í Pleasure Tölt bara svona til
að prófa sig áfram og líka af því að Eileen hafði bara farið á hann 4-5 sinnum fyrir keppnina. Þannig að það var
frjáls ferð á tölti og snúið við og frjáls ferð á tölti.

Hún fékk 6.20 í forkeppninni og í úrslitunum fékk hún 6 hjá öllum dómurunum upp á vinstri og svo þegar
hún reið honum upp á hægri reið hún aðeins hraðar og hann var rosalega flottur hjá henni og hún fékk 7.0 hjá
3 dómurum og 6.5 hjá tveim og aðaleinkun uppá 6.42" T8F - Pleasure Tölt - A-Final 


 01  007 Eileen Ma / Hvati frá Ketilsstöðum 6.4

                  LeftHand    6.0-6.0-6.0-6.0-6.0  6.00                 

                RightHand    7.0-7.0-7.0-6.5-6.5  6.83

 

 

eileen_og_hvatiEileen og Hvati,

Mynd: Ásta Bjarnadóttir Covert