20
Oct 11

Var að fá sendar þessar skemmtilegu myndir, en þær eru af honum Hvata okkar, en hann var seldur til Bandarikjanna. Hvati hlaut 8,19 í kynbótadóm þegar hann var 5 vetra, en hann er sonur Gusts frá Hóli og Hefðar frá Ketilsstöðum,  en hún er dóttir Vakningar.

Í vor var Hvati geltur og er nú er í eigu Eileen og er hjá Will og Ástu á Flying C í Californiu. Ferðin gekk vel og Hvati er í fínu formi. Við höfum fengið þær fréttir að Eileen sé mjög ánægð með hann og sé að fara að taka þátt í sínu fyrsta móti á honum um helgina.

 


Myndir: Ásta Bjarnadóttir Covert hvati_usa11_3 hvati_usa11_2