16
Oct 11

Héðan hefur ekki verið mikið að frétta þessa daganna en tamningar ganga vel ogvið erum að snudda í hinu og þessu. Undanfarið hef ég verið að uppfæra heimasíðuna og held ég að því sé að mestu leyti lokið í bili.

Erum búin að taka reiðhöllina í gegn, undirlagið var farið að gefa sig þannig að við mokuðum skeljasandinum út, bættum við og sléttuðum millilagið og settum inn nýjan skeljasand.

Veggirnir voru skrúbbaðir og skolaðir og fótafjölin lökkuð, enda var hún orðin ansi mött.  Þannig að nú er reiðhöllin alveg eins og þegar hún var ný.

 
 reihllin_okt11_002  reihllin_okt11_009
 reihllin_okt11_022  
    Myndir: Gangmyllan