22
Aug 11

Nú er langur tími liðinn og engar fréttir héðan og eru á því ýmsar skýringar. Önnur skýringin er sú að ég er búin að vera erlendis í viku og hin er sú að það er búið að reynast mér erfitt að klára að skrifa um íþróttamót Harðar og Dreyra. Er búin að skrifa upp greinina aftur og aftur og hef ég ekki fengið mig til að láta frá mér það sem mig hefur langað til að láta flakka.

En ég kemst ekki hjá því  að segja að ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum með dómgæsluna á mótinu.  Við Kraflar tókum þátt í tveimur A úrslitum, tölt og fjórgang og enduðum í þriðja sæti í fjórgangi og fjórða sæti í tölti. Ég ætla ekki að reyna að raða í sæti í dag frekar en áður, enda sá ég bara hluta af öllu því sem fram fór. En ég get alveg tjáð mig um einkunnir sem voru gefnar á hrossinu sem ég var á og það sem ég sá, því að á  mótum er ekki bara verið að raða í sæti, heldur eigum við knapar að fá einkunnir sem við getum unnið með og haft til hliðsjónar. Við eigum að fá skýr skilaboð um hvað er gott og hvað má bæta.

Ég hef keppt á fimm íþróttamótum á Kraflari í ár og verið í stöðugum framförum, það veit ég, einkunnirnar sýna það og þeir sem hafa þekkingu og fylgst hafa með hafa séð það. Ég hef tekið mark á hverri einustu einkunn sem ég hef fengið, rætt við dómara og hestamenn  og fengið skýr skilaboð, sem ég hef fylgt og viti menn það hefur borið árangur, augljóslega .

Íþróttamót Sleipnis 4 gang 7, 23 og tölt 7,50 .

Íþróttamót Geysis 4 gang 7,57   og tölt  7,83

Heimsmeistaramóttsúrtaka 4 gang 7,47 og tölt 7,63

Gullmótið 4 gang 7,27

Íslandsmótið 4 gang 7,63 tölt 7, 83 býsna flott finnst mér.

 Íþróttamót Harðar og Dreyra og þá fær hann 7,13 í 4 gang og í fyrsta sinn er hann lægri í tölti ,7,07. Ekki bara það, heldur fékk hann einkunninina 6,7  í forkeppni 4 gangi hjá einum dómara sem fólst í því að hann gaf honum m.a 5,0 fyrir hægt tölt.Auðvitað hefði eitthvað getað farið úrskeiðis hjá okkur Kraflari, en nei það gerði það ekki,hann hefur aldrei verið betri að ríða inn á keppnisvellinum, hann var við taum takthreinn á réttum hraða og hágengur, það sáu allir sem vildu.

 

 

 En hver er ég sem segir það? ég hef unnið eingöngu við hesta og allt sem þeim viðkemur í 30 ár, já 30 ár hefur það verið mín vinna. Ég hef þjálfara, reiðkennara og dómara menntun, er mjög virkur og starfandi reiðkennari og hef verið landsliðsþjálfari Svía, normanna og Íslendinga oftar en einu sinni, ég veit hvað ég tala um.

 

Ég er ekki að rökræða hvort hann hefði átt að fá 8,0 eða 9,0, auðvitað getur ýmislegt spilað inn í, það veit ég vel, veður, vallaraðstæður, dagsformið og hinir hestarnir. Við erum að ræða um einkunnina 5,0, bara sí svona, ég spyr hvað gekk honum til? Síðan gaf hann honum einkunnina 6,5 fyrir hægt tölt í 4 gangs úrslitunum og hækkaði hann síðann upp í 7,0 í tölt úrslitunum. Til hvers? ekki var hann að skána.  Á íslandsmótinu fékk hann einnkunina 9,0 út  úr úrslitum í 4 gangi fyrir hægt tölt og hefur á öllum þeim íþróttamótum sem hann hefur tekið þátt í, í vor fengið milli 7,5 og 9,0 í forkeppni og í úrslitum  frá 8,0 til 9,5.  Hann  er með einkunnina 9,5 kynbótadóm oftar en einu sinni, þannig að íþrótta og kýnbótadómurum ber saman um að hann er með afburða hægt tölt.

 Það er leiðinlegt að skrifa þetta því þarna voru líka dómarar sem stóðu sig vel og er það ekki mín meining að kasta rýrð á þá, eða þeirra starf en það er ljóst að svona vinnubrögð hafa áhrif á fleiri en parið sem einkunnina hlýtur.  Maður verður bara svo svekktur þegar svona lagað gerist og þetta er bara eitt dæmi, en það hefði verið hægt að minnast á ýmislegt annað. Held að það sé löngu orðið timabært að  stokka upp í dómaramálunum, hugsa það öðruvisi og er ég með ýmsar hugmyndir sem vert er að skoða.  Þangað til verður maður bara að reyna að sniðganga ákveðna dómara, vegna þess að þegar hestum er gefið í sífellu rangar einkunnir, getur ekki verið lengur um mistök að ræða, heldur vanþekkingu eða í versta falli eitthvað persónulegt og það eru alls ekki allir sem eru tilbúnir til að leggja margra ára þjálfun undir svona vinnubrögð,  alla vega ekki ég.  

Svona í restina vil ég taka það fram að ég hef í stórum dráttum verið ánægð með dómgæsluna á öllum hinum mótunum sem ég hef tekið þátt í í sumar og  hef eins og ég minntist á hér áður getað unnið úr þeim og nýtt mér til framdráttar. Ég held líka að það sé mikilvægt að við látum vita þegar okkur finnist eitthvað klárlega rangt því dómarar þurfa líka aðhald og fræðslu eigi þeir að þróa sig, því við megum aldrei gleyma að dómarar eru og eiga að vera leiðandi í þróun reiðmennskunnar.

 
 rttamt_harar11_046  rttamt_harar11_006
 rttamt_harar11_051  rttamt_harar11_049
 rttamt_harar11_054  rttamt_harar11_060
 Myndir: Gangmyllan