19
Aug 11

Íþróttamót Dreyra og Harðar er núna um helgina og tökum  við Bergur þátt með þrjá hesta. Ég keppi á Kraflar frá Ketilsstöðum og Háfeta frá Leirulæk og Bergur keppir á Vakari frá Ketilsstöðum. Háfeti er nýr hestur í keppni hjá mér og bind ég miklar vonir við hann. Hann var annar á iþróttamótinu á Hellu í vor en ég reið á Kraflari í úrslitunum. Núna var hann fyrstur inn á sem aldrei er plús,  allavega  ekki á oþekktum hesti. Hann var ágætur en það hefði hentað honum  betur að hafa gangtegundaröðina öðruvisi, hann komst í áttunda sætið í þetta sinn, með 6,90.  

Vakar er heldur ekki mjög reynslumikill en þó hefur hann keppt nokrum sinnum og besti árangurinn er líklegast þegar Bergur komst í úrslit á honum í meistaradeildinni í vetur og urðu þeir í fimmta sæti í ansi sterkri keppni. Í dag var Vakar bara góður,  eins og staðan er núna er hann í B-úrslitum í tiunda sæti með 6,77.

Kraflar var mjög góður, virkilega góð tilfinning að riða honum, tók það að visu svolitið rólega á brokkinu eftir ófarir okkar á Íslandsmótinu, en hann var öruggur og  jafn, fetið gott og yfirferðin alltaf að smá aukast og batna. þegar ég var buin fannst mér  ég vera búin að ríða mína bestu forkeppni á þessu sumri, og var verðlaunuð með langlélegustu einkunn hjá okkur á þessu ári, 7, 13 og toppurinn var 6, 7 hjá einum dómara. Það varð annað sætið og ætla ég alls ekki að tjá mig um sætisröðunina,enda sá ég ekki marga hesta. En ef ég ber saman þessa einkunn við aðrar einkunnir sem við höfum hlotið á þessu sumri er alls ekkert samræmi í því. Læt fylgja með slatta af myndum, myndir er ekki allt og geta líka verið misvisandi, en ef margar góðar myndir koma út úr einni sýningu segir það samt ýmislegt.

 rttamt_dreyra11_074Kraflar  rttamt_dreyra11_075  rttamt_dreyra11_076
 rttamt_dreyra11_092  rttamt_dreyra11_079  rttamt_dreyra11_089
 rttamt_dreyra11_099  rttamt_dreyra11_102  rttamt_dreyra11_103
 rttamt_dreyra11_117  rttamt_dreyra11_118  rttamt_dreyra11_116
 rttamt_dreyra11_037Vakar  rttamt_dreyra11_040  rttamt_dreyra11_046
 rttamt_dreyra11_054  rttamt_dreyra11_057  rttamt_dreyra11_062
 rttamt_dreyra11_004Háfeti  rttamt_dreyra11_025  rttamt_dreyra11_027
    Myndir: Gangmyllan