28
Jul 11

Síðustu kynbótahrossin sem ég á eftir að kynna sem við vorum með á Landsmótinu, eru þeir Ljóni og Gandálfur, en þeir voru í flokki 7 vetra stóðhesta og eldri. Ljóni er sonur Ljónslappar og Álfasteins frá Selfossi. Ljónslöpp er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Álfasteinn náði skilyrðunum fyrir heiðursverðlaun í ár aðeins tíu vetra gamall. Hér er svo sem ekki miklu við að bæta, nema þó eitt og það er að Ljónslöpp er dóttir Odds frá Selfossi og það er einnig Stelpa frá Meðalfelli, en hún er móðir Spuna frá Vesturkoti. Þannig að Spuni og Ljóni er 3/4 bræður, ekki dónalegt það.

Ljóni hefur ekki átt gott ár í ár því ekki hefur verið hægt að þjálfa hann langtímum saman vegna múkks og alskonar slappleika og efnavöntunar, það var svo þrálátt að það leit alls ekki vel út með það að það væri yfir höfuð hægt að fara með hann í dóm.

Ákvörðunin var hins vegar tekin að fara með hann, vegna þess að það er erfitt að sleppa úr heilu ári í sýningu á ungum hesti, menn sem eru búnir að panta vilja jú fá að sjá þá en eftir á að hyggja hefði kannski verið best að sleppa því, en ef maður væri alltaf með svoleiðis hugafar kæmist maður nú ekki langt.

Útkoman varð alla vega að hann lækkaði frá í fyrra, fyrst á Hellu og svo aftur á Landsmótinu. Ekki mikið þó, en ef allt hefði verið með felldu mætti nú ætla að hann hefði átt að hækka. Í fyrra var hann með 8,39 í aðaleinkunn en lægstur var hann í ár með 8,35 á Landsmótinu, þó svo að hann hækkaði verulega fyrir sköpulag milli ára, úr 8,44 í 8,61 enda er hann fjallmyndarlegur og vel gerður. Hann hækkaði úr 7,5 í 8,0 fyrir höfuð, úr 6,5 í 7,0 fyrir réttleika, úr 9,5 í 10 fyrir hófa og úr 8 í 8,5 fyrir prúðleika. það er engin smá undirvagn á hestinum 9,0 fyrir fótagerð og 10 fyrir hófa.

Þvi miður var hann úthaldslítill  og það kom auðvitað niður á hæfileikunum, í fyrra var hann með 8,35 í vor lækkaði hann á Hellu í 8,19 og aftur á landsmótinu niður í 8,17. Viljinn lækkaði úr 8,5 í fyrra í 8,0 á Landsmótinu og stökkið úr 8,0 í 7,5, fetið um heilan úr 8,0 í 7,0 og hæga töltið um hálfan, úr 8,5 í 8,0.Hæga stökkið hans hefur verið að veltast ámilli 7,5 og 8,0 og það hættir aldrei að koma mér að óvart, held í hvert skipti sem hesturinn er að koma í dóm að nú kemur að því, nú hljóta þeir að sjá það, en nei, allt kemur fyrir ekkert. En að minu mati er hesturinn er með óvenju gott hægt stökk að alhliða hesti að vera, þrítakta,gott svif og fallagt stökk. Akkúrat það sem kemur til með að hjálpa honum í fimmgang, þar verða ekki vandamál á hringvelli.

Birti hér Landsmótsdóminn hans Ljóna, en stefnar er auðvitað að syna hann aftur í kynbótadómi á næstu ári, og svo verður byrjað að keppa á hann, erum við að sjá fyrir okkur að hann geti hentað m.a vel í fimmgang. 

Sköpulag: 8,0  8,5  8,0   8,5  9,0  7,0 10,0  8,5 samtals 8,61

Hæfileika: 8,5  8,5  8,0  7,5  8,0  8,5  7,0  samtals 8,17  aðaleinkunn: 8.35

Hægt tölt: 8,0  Hægt stökk: 7,5  

 
 landsmt11_060  Í dómi landsmt11_133 
 landsmt11_112  landsmt11_127Úr ræktunnarbússyningunni
 landsmt11_063  landsmt11_493
 landsmt11_061-1  landsmt11_770-1
  Myndir: Gangmyllan