11
May 11

Nú er nýafstaðin kynbótasýning á Selfossi og er það í fyrsta sinn sem hún er haldin þar. Mjög vel var staðið að þessari sýningu og er það alveg ljóst að Brávellir eru með allt sem þarf til að halda slíka sýningu. Vellirnir voru góðir, gott upphitunnarsvæði, stutt ámilli valla og reiðhallar þar sem byggingadómur fór fram, sem er afar þægilegt. Það var alltaf heitt á könnunni, starfsfólkið allt hið liprasta og eiga Sleipnismenn þakkir skilið fyrir þetta.

Við sjám það fyrir okkur að svona verður þetta í framtiðinni, sýningar á fleirum stöðum svo fólk þurfi að fara sem styðst og hestarinir sem eiga eð koma til syningar þurfa ekki að vera upp á kerrum klukkutímunum saman, heldur er auðvelt fyrir fólk að skjótast á milli með hestana sína. Óskin er að á næsta ári fái Sleipnismenn betri dagsettningu á sína sýningu og hlýtur að vera hægt að keyra nokkrar sýningar samhliða þannig að engin staður sem ætlar bara að halda eina sýningu það árið þurfi að hafa sína sýningu svo snemma. Auðvitað er það ljóst að fjöldin verður ekki sá sami og ef sýningin hefði verið seinna og líklega heldur ekkert aðdráttarafl að sýningin sé notuð til samræmingu dómara.

Við sýndum tvo hesta til fullnaðar dóms og lækkuðu þeir báðir frá því í fyrra þannig að það var svo sem ekkert til að státa sig af, Þeir lækkuðu báðir í byggingu um hálfan í fótagerð.

Hugur  fór úr 8,2 9  í 8,18 í aðaleinkunn sem fólst í að hann lækkaði um hálfan í fótagerð og fet og heilan í brokk en hækkaði um hálfan í skeiði og er nú komin með 9,0 fyrir skeið. Hann varð full beittur í dómi og brókkið varð óöruggt fyrir vikið, hann brokkaði svo miklu betur í yfirlitinu, en fékk bara hálfan í hækkun, synd þvi hann er með mjög gott brokk. 

 

 Gándálfur missti níuna sína fyrir vilja og geð og er okkur það lífsins ómuglegt að skilja það, eða þá bara skilja eitthvað í vilja dóm yfir höfuð.

Tökum dæmi:

5 vetra gamall fékk han fyrir hæfileika : 8,31 sem hljóðaði þannig:

Tölt: 8.0 Brokk: 8,5 skeið 8,0 Stökk 8,5 Vilji:9,0 Fegurð í reið: 8,0 Fet:8,0 Hægt tölt: 7,o 0g hægt stökk: 7,5

 

7 vetra gamall fær hann:

Tölt 8,5 Brokk:9,0 Skeið: 8,5 Stökk: 8,5 Vilji: 8,5 Fegurð í reið: 8,5 Fet: 7,5 Hægt tölt:8,5 og Hægt stökk: 7,5

 

Samantekið hækkar hann um hálfan fyrir tölt,brokk, skeið, fegurð í reið, lækkar um hálfan fyrir fet og hækkar um einn og hálfan fyrir hægt tölt, og þegar hæfileikarnir snarhækka þá lækkar hann fyrir vilja og geð?? Nóta ben sem útskyring á vilja á báðum stöðum stendur ásækni og Þjálni??

Við vitum að viljadómur er ekki bara tölfræði en come on, viljum við hafa þetta svona??

Við hendum þessu fram  í umræðuna, við erum ýmsu vön og tökum þessu eins og öðru en umræðan er hóll og löngu komin timi til að við skilgreinum viljan betur almennt því vilji og geðslag er mikivægasti þátturinn af öllum, alger forsenda fyrir því að aðrir hæfileikar fá að njóta sín. 

 kynbtasyning_selfossi_mai11_034 kynbtasyning_selfossi_mai11_018 
 kynbtasyning_selfossi_mai11_027  kynbtasyning_selfossi_mai11_003
 kynbtasyning_selfossi_mai11_028  kynbtasyning_selfossi_mai11_005
 kynbtasyning_selfossi_mai11_030  kynbtasyning_selfossi_mai11_010
 kynbtasyning_selfossi_mai11_031  kynbtasyning_selfossi_mai11_008
                                             Myndir: Gangmyllan