Æfing á Selfossi í dag og svo auðvitað myndataka af Elinu og Brynju sem eru að fara að keppa í B-flokki á Landsmótinu fyrir hönd Sleipnis. Held að það hafi verið sumarveður í allt að 30 min. og flugurnar trylltust, með þessum afleiðingum.
Á Landsmótínu á Hólum var Álfadís frá Selfossi á bakvíð ca. 24 % kýnbótahrossana, hvert hlutfallið er núna veit ég ekki en gaman er að kanna það víð tækifæri.
Fimm afkvæmi hennar eiga þáttökurétt á þessu móti, Álfarinn í A-flokki, Álfgrímur í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta, Huldumær í 6 vetra flokki hryssna, Álfaklettur i 5 vetra flokki stóðhesta og Ljósálfur í flokki 4 vetra stóðhesta.
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og Hugmynd frá Ketilstöðum munu taka þátt í flokki 5 vetra stóðhesta og hryssna á Landsmótínu. aðaleinkunn Álfakletts er 8,53 og Hugmyndar 8,57.
Tvær hryssur frá Gangmyllunni, Framsýn frá Ketilsstöðum og Huldumær frá Syðri-Gegnishólum munu taka þátt í flokkí 6 vetra hryssna á Landsmótínu. Á Landsmótínu á Hólum 2016 tóku þær þátt í flokki fjögurra vetra hryssna, áttu svo folöld 2017.
Þessir tveir stóðhestar munu keppa í flokki 7 vetra og eldri á Landsmótinu í Júlí.
Stúdent frá Ketilsstöðum er 8 vetra undan Orku frá Gautavík og Álffinni frá Syðri Gegnishólum. Aðaleinkunn er 8,55.
Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum er 7 vetra undan Álfadís frá Selfossi og Orra frá Þúfu í Landeymum. Aðaleinkunn er 8.45.
Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum er 4ra vetra sonur Álfadísar frá Selfossi og Lords frá Vatnsleysu. Hann var sýndur sem klárhestur þótt hann sé alhliðahestur en skeiðið hefur ekki verið prufað enn sem komið er. Hann uppskar 8,07 í aðaleinkunn og náði syningarrétti á Landsmótið.
Átta kynbótahross úr okkar ræktun náðu þáttökurétti á Landsmótið og erum við ákáflega ánægð með það.
Þessi hestur heitir Gigur frá Ketilsstöðum og hlaut hann 8,18 í aðaleinkunn 4 vetra gamall klárhestur. Móðir er Ör frá Ketilsstöðum og faðir er Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum.
Bergur og Sædís frá Ketilsstöðum tók þátt í fyrsta skipti í gær í 250 m. skeiði Skeiðfélagsins og lentu þau í 2. sæti á 23,5 sek. Hér er úrslitaspretturinn sem vannst á einum besta skeið hesti Íslands Kjarki frá Árbæjarhjáleigur knapi Konráð Valur Sveinsson og Lukka frá sama bæ og Hekla Katarina Kristinsdóttir urðu í 3ja sæti.
Mildrid Musdalslien og Fálmar frá Ketilsstöðum sigruðu 4 gang 4.1 á Hrimnirmótinu í Noregi siðastliðnu helgi. Aðaleinkunn var 7,20 í mjög svo sterkri keppni, Fálmar er undan Þernu frá Ketilsstöðum og Sveini-Hervari frá Þúfu. Árið 2014 keppti ég á þessum hesti og varð önnur í 4 gangi í Meistaradeildinni og Suðurlandsmeistari í meistaraflokki í forkeppni með 7,47. Fálmar er snillingur og erum við mjög sátt við að vera með alsystir hans, Spes, í ræktun.
Við sýndum þessa hryssu í siðustu viku, hún heitir Hugrökk frá Ketilsstöðum og er 7 vetra gömul. Hún var sýnd 4 vetra í 8,18 og siðan er hún búin að eiga tvö folöld. Í vetur hefur hún verið í þjálfun og er að komast í form hægt og örugglega. Hryssan er gæðingur og aðaleinkunn var 8,27 þ.a 8,5 fyrir tölt og hægt tölt,brokk skeið, fegurð í reið og 9,0 fyrir vilja.Fyrir hæfileika hlaut hún 8,47, verður spennandi að sjá hvernig hún þróast næstu vikurnar. Móðir er Djörfung og Faðir Natan frá Ketilsstöðum. Knapi Elin Holst.
Algjör hamingja, Álfadís kastaði brúnni hryssu í morgun undan Stála frá Kjarri. Þarna er hún umkringd móður sinni henni Álfadísi, stóru systir Álfhildi og svo henni Kötlu. En Katla var ákveðin í að vera með á myndinni. Þokkalegar fyrirmyndir það fyrir þá litlu.
Ég tók þetta myndbrot af Sædísi frá Ketilsstöðum ein að skeið hestum okkar í þjálfun.
Móðir er Ör frá Ketilsstöðum og faðir Gustur frá Hóli.
Ég verð að birta nokkrar myndir af þessari ótrúlega skemmtilegu hryssu henni Hugmynd frá Ketilsstöðum. Hún hlaut 8,52 í aðaleinkunn í gær aðeins 5 vetra gömul, þ.a 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, hægt stökk, fegurð í reið og 9,5 fyrir vilja, aðaleinkunn hæfileika er 8,78. Móðir hennar er Djörfung frá Ketilsstöðum og faðir er Aðall frá Nýjabæ.
Hér eru nokkrar myndir af Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum sem við tókum í gær, þegar hann var dæmdur á Selfossi. Hann fékk frábæran byggingadóm 8,65 þ.a 9,0 fyrir höfuð og bak og lend og 9,5 fyrir samræmi. Fyrir hæfileika fékk hann 8,41 þ.a 8,5 fyrir tölt og hægt tölt, skeið og fegurð í reið og 9,0 fyrir vilja. Aðaleinkunn er 8,51 og yfirlit á föstudag. Við fengum líka þetta skemmtilega myndband af Álfakletti í dóm í dag, var víst búið til á staðnum.
Þessi flotta hryssa er til sölu, Herdís frá Lönguhlið 1. verðlauna klárhryssa undan Glódísi frá Stóra-Sandfelli 2 og Sveini-Hervari frá Þúfu. Á sinu fyrsta keppnisári hefur hún staðið sig frábærlega, þessar myndir eru teknar á Opna World Ranking móti Sleipnis þar sem hún var í A- úrslitum í 4 gangi meistara. Hún var m.a. í A úrslitum i Slakataumatölti meistaradeildarinnar í vetur. Hryssan er í toppformi og er tilvalin fyrir einhverja sem eru að spá í að taka þátt í gæðingakeppni á LM hvort sem um er að ræða eldri eða yngri flokka.
Við tókum þessar myndir um daginn af Ljósálfi frá Syðri-Gegnishólum, hann er 4 vetra undan Álfadísi frá Selfossi og Lord frá Vatnsleysu. Það hefur myndast hefð hjá okkur að birta myndir af afkvæmum Álfadísar þegar sýningar nálgast, hér er kappinn.
Stúdent frá Ketilsstöðum var í 2 sæti í 5 gangi á World Ranking móti Sleipnis siðastliðna helgi. Efir forkeppni var hann í 1. sæti með 6,97 og í úrslitum lenti hann í 2 sæti með 7,14. Hann er undan Orku frá Gautavík og Álffinni frá Syðri-Gegnishólum, knapi var Bergur Jónsson.
Brynja Amble Gísladóttir og Goði frá Ketilsstöðum unnu 4 ganginn í 1. flokki og urðu í þriðja sætinu í slaktaumatölti á World Ranking móti Sleipnis siðastliðna helgi. Her eru nokkrar myndir af þeim, en Goði er unda Væntingu frá Ketilsstöðum og Álffinni frá Syðri Gegnishólum.
þessar eru hamingjusamar, þær voru rétt í þessu að vinna 4 gang í V2
og V.1. Bergur heimtaði að fá að vera með á myndinni á þeim forsendum að hann hefði ræktað báða hestana.
Spennandi dagur framundan á World Ranking iþróttamóti Sleipnis.