02
Aug 17

Álffinnur er 10 vetra núna og er staðsettur í Svíþjóð, eigendur eru Alfakungen AB. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar þegar hann hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Álffinnur er undan Álfadís frá Selfossi og Orra frá Þúfu.


Ég skoðaði afkvæmin hans í WorldFeng og árangur þeirra eftir tímabilið. Það eru núna skráð 30 dæmd afkvæmi, 21 þeirra hafa hlotið 8,00 og hærra en níu eru með einkunn undir átta, niður í 7,68 sem er lægsta talan.

Í augnablikinu hefur Álffinnur Blup upp á 123. Það verður spennandi að fylgjast með nýjum útreikningunum eftir þetta tímabil. Álffinnur á í dag einungis 129 afkvæmi allt í allt.

Takk Svenja Neu fyrir þessar fínu myndir af Álffinni frá Syðri-Gegnishólum sem voru teknar á síðasta Landsmóti á Hólum 2016.

{gallery}AlffinnurBreeding2017{/gallery}