21
May 17

Frábæru Word Ranking móti Sleipnis er lokið, það voru margir frábærir hestar og knapar að keppa á þessu sterka móti. Okkar teymi gekk bæði upp og niður en þó að mestu leiti gekk vel. Elin og Frami gerðu það gott með þrjú gull, í V1, T2 og samanlögðu. Bergur og Katla voru ekki upp á sitt besta svo þau enduðu í þriðja sæti í T1 og því fimmta í fjórgangi.
Freyja og Álfastjarna eru á uppleið að því er sýnist og lentu í áttunda sæti í fjórgangi með 7,23 / 7,43 og í fjórða sæti í T1 með 7,50/7,50.

{gallery}WR Sleipnir 2017 final{/gallery}