07
May 17

Stóðhestadagur Eiðfaxa var í gær og sýndum við fjóra hesta. Birti hér nokkar myndir af Álfgrími þar sem hann er sá eini þeirra sem hvergi hefur komið fram á þessu ári. Álfgrímur var með brotinn jaxl sem var tekinn í byrjun janúar og fór drjúgur tími í að jafna sig því þetta reyndist töluvert meira inngrip en okkur grunaði. Hesturinn stóð sig vel þó það muni þó nokkru að hann sé kominn með fullan styrk.

Brynja og Goði voru á sýningunni og áttu flotta sýningu, sjá myndir af þeim í albúminu.
Elin og Frami sýndu sig vel á stóðhestadeginum og nokkrar myndir af þeim eru í albúminu líka.

{gallery}StodhestadagurEidfaxa2017{/gallery}