21
Apr 17

Í fyrra seldum við frábæran stóðhest, Álffinn frá Syðri Gegnishólum til Alfakungen AB og er hann nú staðsettur hjá Ylva Hagander í Fors gard í Svíþjóð. Álffinnur er annar í röð fjögurra alsystkina sem öll eru frábærir gæðingar undan Álfadís frá Selfossi og Orra frá Þúfu sem bæði hafa hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Álfur frá Selfossi er þeirra elstur með 8,46 í aðaleinkunn sem hann hlaut sex vetra en hann var yngstur til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Sleipnisbikarinn á Landsmóti einungis tíu vetra gamall. 
Næstur í röðinni er Álffinnur með 8,37 í aðaleinkunn sem hann hlaut sjö vetra gamall og sló met bróður síns með því að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi einungis átta vetra gamall.
Næst kemur Álfhildur með aðaleinkunn upp á 8,52 sem hún hlaut sex vetra gömul, þar á meðal 10,0 fyrir tölt og vilja og geðslag. Álfhildur vann sex vetra flokk hryssna á Landsmóti 2017.
Yngstur systkinanna er Álfgrímur, hann hlaut í aðaleinkunn 8,46 á Landsmóti 2016 einungis fimm vetra gamall fjórgangshestur.

Ég vek athygli á að Álffinnur verður til afnota í Stenholmen í Svíþjóð í ár og skrifa þetta þar sem ég er ekki viss um að allir átti sig á bakgrunni hans og kynbótagildi. Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu hans http://alffinnur.forsgard.se/

{gallery}SiblingsNews2017{/gallery}