15
Jul 14

Á nýafstöðnu Landsmóti hlaut hryssan okkar Álfhildur frá Syðri Gegnishólum 8, 68 fyrir hæfileika í kynbótadómi og í kjölfarið af því kom upp umræða um hvort að þetta var ekki klárhryssu hæfileikamet. Stuttu síðar kom svo í ljós að nokkur af frægustu klárhrossum landsins hafi verið töluvert hærri. Fór ég að hugsa það eftir á að það væri nú gaman að sjá hvaða einkunnir þessi hross hefðu eiginlega fengið, klárhross með um 8,70-80 fyrir hæfileika. Þegar ég skoðaði svo dóm eins þeirra fannst mér hann ekki endilega vera hærri þó svo að aðaleinkunn hæfileika segði annað. Eftir umhugsun komst ég að því að vægisbreytingin sem tók gildi að við höldum,  2010 hafði veruleg áhrif þar á, þ.a.e.s. hæfileikadómur hrossa dæmd fyrir þann tíma er reiknaður út á öðrum forsendum.

Hér leyfi ég mér til gamans að reikna út hæfileikadóm nokkurra þeirra afburða klárhrossa á sama væginu, það er að segja hvað hrossin sem hlutu sinn dóm fyrir 2010 hefðu fengið með útreikningi nýja vægisins og svo hvað klárhrossin sem hlutu sinn dóm 2010 eða seinna hefðu hlotið í hæfileika- og aðaleinkunn fyrir vægisbreytingar.
Hrossin sem fyrir valinu urðu eru hross sem ég man að hafi fengið afburða dóm fyrir hæfileika og er þetta því ekki tæmandi listi. Líklega hef ég gleymt mörgum hrossum sem vel hefðu getað verið á þessum lista. En þetta er gert til að sýna hverning áhrif vægisbreytingin hefur, hvort sem hún er til batnaðar eða ekki. Enda hef ég enga skoðun á þvi, fyrir mér eru þetta bara staðreyndir og eitthvað sem er vert að skilja. Réttast væri kannski samt einungis að bera saman dóma reiknaða út á sama væginu þegar talað er um hæfileika met.

Eldjárn frá Tjaldhólum                         Gildandi einkunn er: Sköpulag  8,09    Hæfileikar  8,85   Aðaleinkunn 8,55     Með nýja væginu: Sköpulag  8,09 Hæfileikar  8,69   Aðaleinkunn 8,45 
6 vetra í dómi (2006) 

Hekla frá Heiði                                    Gildandi einkunn er: Sköpulag  8,02    Hæfileikar  8,78   Aðaleinkunn 8,48     Með nýja væginu: Sköpulag  8,02 Hæfileikar  8,53   Aðaleinkunn 8,33 
6 vetra í dómi (2002)
 

Hnota frá Garðabæ                            Gildandi einkunn er: Sköpulag  8,14    Hæfileikar  8,80   Aðaleinkunn 8,54     Með nýja væginu: Sköpulag  8,14 Hæfileikar  8,68   Aðaleinkunn 8,47 
12 vetra í dómi (2007) 

Álfur frá Selfossi                               Gildandi einkunn er:  Sköpulag  8,11   Hæfileikar  8,69   Aðaleinkunn 8,46     Með nýja væginu: Sköpulag  8,11 Hæfileikar  8,55   Aðaleinkunn 8,38 
6 vetra í dómi (2008) 

List frá Vakurstöðum                         Gildandi einkunn er:  Sköpulag  8,05   Hæfileikar  8,69   Aðaleinkunn 8,44     Með nýja væginu: Sköpulag  8,05 Hæfileikar  8,55   Aðaleinkunn 8,35 
8 vetra í dómi (2006)

Fura frá Hellu                                     Með gamla væginu:  Sköpulag  8,46   Hæfileikar  8,73   Aðaleinkunn 8,62     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,46 Hæfileikar  8,58   Aðaleinkunn 8,53
6 vetra í dómi (2013) 

Kappi frá Kommu                                Með gamla væginu:  Sköpulag  8,51   Hæfileikar  8,62   Aðaleinkunn 8,58     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,51 Hæfileikar  8,51   Aðaleinkunn 8,51
6 vetra í dómi (2010)

Hreyfill frá Vorsabæ II                        Með gamla væginu:  Sköpulag  8,50   Hæfileikar  8,68   Aðaleinkunn 8,61     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,50 Hæfileikar  8,56   Aðaleinkunn 8,54
6 vetra í dómi (2014)

Sökkull frá Dalbæ                                 Með gamla væginu:  Sköpulag  8,07  Hæfileikar  8,74   Aðaleinkunn  8,47     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,07 Hæfileikar  8,58   Aðaleinkunn 8,38  
5 vetra í dóm (2014) 

Álfhildur frá Syðri Gegnishólum         Með gamla væginu:  Sköpulag  8,28   Hæfileikar  8,89   Aðaleinkunn 8,65     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,28 Hæfileikar  8,68   Aðaleinkunn 8,52
6 vetra í dómi (2014)

 

Þessir útreikningar eru samkvæmt okkar skilningi réttir, vel má vera að einhverjar villur séu þó svo að við höfum tvívegis yfirfarið.