29
May 10

Í gær var yfirlitssýning í Hafnarfirði og vorum við með alls níu stóðhestar þar, sjö í okkar eigu og tveir í eigu annarra. Erum við mjög ánæg með útkomuna, miðað við ástandið sem er á Islandi í dag. En það er nattúrlega háalvarlegt mál að hrossastofnin í heild sinni er veik og setti það auðvitad heilmikin svip á útkomu sýningarinnar. Margir hrossaræktundir komast ekki með hestanna í dóm vegna veikinda sem ekki er búið á sjá fyrir endann á. Við ákváðum að drifa sem flesta hesta í dóm ádur enn þeir veikjast, þvi veikin er enn ekki komin í hámarki hjá okkur. Þó að sex af þessum hestum hafi náð lágmarki inn á landsmót er alls óvíst hvort að þeir geta verið þar þvi að þeir eiga eftir að veikjast. sumir eru þó orðnir veikir, Mergur fékk ekki dóm vegna þess að hann hóstaði í dómi og Flugir sem er fimm vetra hóstar, enn hann var með 8,11 siðan i fyrra og er búinn að bæta sig töluvært siðann þá. Svo eru öll fjögurra vetra hrossin eftir að fara í dóm, margar hryssurnar eru veikar og það lítur alls ekki vel út þvi þær tapa svo verðmætum tíma núna. Tímin sem er svo mikilvægur. En hverning þetta fer er það tíminn sem verður að leiða í ljós.

En allavega gékk bara vel í gær og hestarnir hækkuðu sig hér og þar og eru flestir bara komnir með myndalega aðaleinkunn. Það er alltaf ljúf að uppskera eftr mikla vinnu og það gerðum við svo sannalega i gær. Liðið hérna hjá okkur stóð sig frábærlega, Max og Ása að gera hestanna tilbúna, Bergur reið fram og tilbaka, Jenný, Jannike, Brynja og Berglind að vídeo mynda og ljósmynda og koma upplysingar til min, en ég var út á brautarenda synendum til halds og trausts ef þeir þurftu einhverja aðstoð. Max endad siðan með þvi að sýna Vakar sem er

sjö vetra, en þá var Bergur búin að sýna alls átta hesta. Útkoman var þannig að Hrollur frá Margrétarhofi fékk í aðaleinkunn 7,84, Hvati frá Ketilsstöðum 8,03, Greipur frá Lönguhlíð 8,21, Hlébarði frá Ketilsstöðum 8,24, Vakar frá Ketilsstöðum 8, 25, Hugur frá Ketilsstöðum 8,29, Ljóni frá Ketilsstöðum 8,39, Gandálfur frá Selfossi 8,39 og Brimnir frá Ketilsstöðum fékk 8,45.  Ég birti mynd af öllum hestunum í þessari frétt en svo ætla ég að kynna þá hver og einn næstu daga,það helsta um dómin þeirra, ættir, hvar þeir verða o.fr.

 hafnarfj._28_mai_yfirlit_hrollur1                Hrollur  hafnarfj._28_mai_yfirlit_066             Hvati
 hafnarfj._28_mai_yfirlit_023-1            Greipur  hafnarfj._28_mai_yfirlit_041           Hlébarði
                     hafnarfj._28_mai_yfirlit_093Vakar  hafnarfj._28_mai_yfirlit_049                Hugur
                    hafnarfj._28_mai_yfirlit_076Ljóni               hafnarfj._28_mai_yfirlit_081Gandálfur
                  hafnarfj._28_mai_yfirlit_058Brimnir