07
Mar 10

Í gær laugardaginn 6 mars fengum við skemmtilega heimsókn,  en það var hrossaræktardeild Fáks og Limsfélagið sem lögðu land undir fót og komu í heimsókn hingað til okkar. Á að giska voru þetta 40-50 manns, hressir og skemmtilegir. Við sýndum við  þeim aðstöðuna okkar , farið var yfir ættir hrossana og svo enduðum við á því að sýna þeim 5 hesta í reið. Fyrst sýndum við þeim tvo fola á fjórða vetri, þá Amazon frá Ketilsstöðum undan Natan frá Ketilsstöðum og Orku frá Gautavík og Gram frá Syðri Gegnishólum, undan Musku frá Stangarholti og Sveini Hervari frá Þúfu. Það eru efnilegir en ekki mikið gerðir folar. Svo sýndum við þeim Merg frá Selfossi sammæðra Gram en undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Hlébarða fra Ketilsstöðum undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og Aron frá Strandarhöfða báðir á fimmta vetri. Síðan enduðum við á að sýna þeim Kraflar fra Ketilsstöðum sem er orðinn mikið gerður hestur. þetta endaði svo í þriggja tíma heimsókn og var hin skemmtilegasta í alla staði og þökkum við þeim fáksfélögum og Limsfélögum kærlega fyrir komuna.

 

 kraflarmars_003  Hrossaræktardeild Fáks og Limsfélagið.
 Verið að skoða þá Amazon og Gram.  kraflarmars_009
 kraflarmars_004  Ása á Merg og Bergur á Hlébarða.
 Bergur og Hlébarði.  kraflarmars_006
 kraflarmars_005  Ása og Mergur.
 Olil og Kraflar.  kraflarmars_001
 kraflarmars_008  kraflarmars_007
 Verið að skoða Amazon  kraflarmars_002