05
Jan 10

Þegar ég kom til Santa Barbara komu Ásta og Will að sækja mig og fóru með mig heim til sín á Flying C Ranch í Roblar, Santa Ynez í Californiu þar sem ég var með þriggja daga námskeið. Þetta er í þriðja sinn sem ég kem til þeirra, en þau eru búin að byggja  fallegt íbúðahús með innanaðgengt yfir í hesthúsið, falleg og hentug lausn. Þar er hringgerði með þak og veggi ,keppnishringvöllur og frábær útiaðstaða fyrir hestana.

Fyrir mig er það mjög sérstakt að koma til Bandaríkjanna, allt annar heimur, allt sem maður snýst í og sinnir daglega skiptir engu máli í þessum heimi, Ísland  og íslenski hesturinn, hvað er það? Það er keyrt með mann eitthvað út í sveit og inn um stórt amerískt hlið þá kemur maður aftur inn í annan heim og þá er hann nú farinn að vera eitthvað sem maður kannast betur við. Því þar tekur á móti manni höfðingar eins og Dynjandi  frá Dalvik, Kaliber frá Lækjabotnum,Bragi frá Hólum, Húni frá Húnavöllum, Þór frá Prestbakka, Flygill frá Mosfellsbæ og svo mætti lengi telja. Svo það var alveg ljóst að menn voru bara ágætlega ríðandi og Ísland og íslenska hestinum til mikills sóma. Það er ekkert smá sem fólkið er tilbúið að leggja á sig til að komast á námskeið eða mót, klukkutímar í flugi, dagar í akstri, vel útbúið, hvort sem það er fatnaður, reiðtygi og ökutæki, mætir það með góða skapið tilbúið til að læra og gantast.

það er alveg ljóst að það sem er einkenni íslenska hestsins, að hann er duglegur,sterkur, stoltur og glaður, laðar hann líka að sér,eða eins og máltækið, líkur sækir líkan heim.

Það er mikil vinna að vera reiðkennari, því fylgja oft löng ferðalög og langir vinnudagar og oft er verið að spyrja mig að því hverning ég get haldið þessu út en það er einmitt þetta sem gefur manni kraftinn, að sjá og finna mikinn áhuga og gleði og samstaða hvort sem það er i Ameriku eða á Vestfjörðum.

Frá Will og Ástu fór ég svo eftir þrjá daga og flaug frá Santa Barbara til Salt Lake City og þaðan til Parisar, en Salt Lake City-Paris eru tiu og hálfur timi á flugi og mér sem finnst þriggja tima Danmerkur flug langt!!!

Frá Pris flaug ég til Lissabon í Portugal en þangað komu saman Bergur, Freyja Hilmarsdóttir og Hafliði Halldórsson en þangað vorum við komin til að þiggja heimboð Julio Borba, reiðkennarans okkar og eyddum við þrem dögum á búgarði hans og fjölskykdunnar hans, Bastarda, sem er mjög nálægt landamærunum Portugal/Spánn en þeirri heimsókn ætla ég að segja nánar frá í næstu frétt. 

        flying_ranch_des09_8Flying  C Ranch.
 flying_ranch_des09_4
 

 flying_ranch_des09_9
 flying_ranch_des09_10           Hringgerðið.
     flying_ranch_des09_5Doug Smith og Lind frá Hofi.
 flying_ranch_des09_2   Lucy Nold og Andri frá Sólbrekku.
 flying_ranch_des09_6  Gayle Smith og Flygill frá Mosfellsbæ.
 flying_ranch_des09_3  Rachel Ng og Kaliber frá Lækjarbotnum.