04
Jan 10

Í byrjun desember lagði ég af stað í lengsta ferðalag sem ég hef farið í. Ég byrjaði á að fara til Boston og flaug þaðan til Atlanta þar var ég sótt og við fórum til Madison í Georgiu þar sem Katrin Sheehan býr. Þar hélt ég þriggja daga námskeið á Creekside Ranch, sem er stór og myndarleg jörð sem Katrin er að byggja upp.

Þar er stórt og fallegt hesthús með íbúð,nýgerðri reiðhöll með mjög áhugaverðu og að ég held góðu gólfi og mikið  af vel girtu landi með góðu skjóli fyrir hrossin.

Það var svolitið sérstakt að þar voru fleri þjóðverjar en bandarikjamenn en Katrin sjálf er þjóðverji að upplagi og svo var gaman að hitta þar Barbara Frische sem er að ég held þekktasti kynbótadómari þjóðverja, en hún er flutt til Bandarikjanna með fjölskyldu sinni til að vinna við ræktunnarmál bandarikjamanna.

Einnig var Frauke Shensel að vinna þarna en hún og Katrin eru i samvinnu við þjálfun kýnbótahrossanna og markmiðið að Frauke sýni fyrir hana kynbótahrossin næsta vor. 

Þarna voru lika fræg hross og svo þekktasti liklegast Óskar frá Litladal sem er reiðhestur Katrinar og í miklu uppáhaldi.

Þetta var i fyrsta sinn sem ég kom til hennar og gaman að sjá hvað hægt er að gera ef áhugi og dugnaður er fyrir hendi.

Frá Creeside Rach fór ég siðan til Will og Ástu Covert á Flying Ranch í Roblar í Californiu en þá flaug ég frá Atlanta til Salt Lake Sity og þaðan til Santa Barbara í California. En ég segi frá dvölinni þar  í næstu frétt.

 

 

creekside_ranch09 

 

Á myndinni frá vinstri er Charlotte  Block, Milena Frische, ég ,Katrin sem heldur i Óskar frá Litla Dal, Barbara Frische og Frauke Schensel.