12
Feb 20
Við erum mjög glöð yfir móttökunum og gagnrýninni sem sem við höfum fengið fyrir sýnikennsluna okkar The Clinic A-Z, nútíma reiðlist og galasýninguna. Uppselt var sólarhring fyrir og fengu færri pláss en vildu. Allt gekk frábærlega og náðum við að koma töluverðu af því sem okkur langaði á framfæri.
Að okkar mati er þetta eitthvað sem við þurfum að gera meira af, hittast til þess að njóta þess frábæra hests sem við eigum, læra að meta meira en fótaburð og hraða. Íslenski hesturinn hefur ekki BARA fimm gangtegundir, hann hefur svo margt margt fleira. Hann er harðgerður víkingur sem daginn eftir brjálað veður kemur til manns eins og ekkert hafi í skorist, hann er rúmur og afkasta mikill gæðingur, hann er frábær reiðhestur og svo getur hann líka verið viðkvæm ballerína og dansað um í alls konar æfingum. Okkur finnst einnig þörf vera á að auka þjálfun og vegsemd hægu gantegundanna og taka þar með þátt í að lyfta hestinum okkar á þann stall sem hann á skilið.
Með sýnikennslu þessari langaði okkur til að deila með ykkur því sem við höfum verið að vinna að og höfum tileinkað okkur í reiðmennsku síðastliðin 15 ár. Júlio Borba kennarinn okkar hefur verið á hestbaki siðan hann man eftir sér og voru faðir hans og föðurbróðir ásamt Louis Valenca hans helstu lærimeistarar. Júlio Borba var knapi hins konunglega portúgalska reiðskóla um 12 ára skeið og sýndi allar æfingar skólans á hestum af hinu fræga portúgalska Lusitanó kyni. Eftir að hann hætti í reiðskólanum hefur hann starfað samfleytt sem reiðkennari í mörgum löndum og er talinn hafa haft mikil áhrif á þjálfun íslenska hestsins.
Okkur langaði að sýna fram á hversu miklu máli þjálfunin skiptir, að njóta litlu framfaranna og reyna að miðla því að hamingja hestsins felst meðal annars í því að hann skilji og ráði við verkefnið sitt. Því meira sem hann skilur því traustari og glaðari verður hann. Okkur langar að reyna að auka skilning hvers og eins á því hvað hann getur bætt sinn hest stórkostlega með því að þjálfa og nota alltaf sama tungumál, margt smátt gerir eitt stórt.
Markmiðið var að það færi vel um alla, bæði starfsfólkið, knapa, áhorfendur og alla þá sem að þessari sýningu komu. Við lögðum mikla áherslu á að vera með upphitun inni, samtengda sýningarsvæðinu, sem er algjör undirstaða í nútíma innanhúss reiðmennsku.
Nóg að drekka og borða fyrir ALLA og staður til að hvíla og spjalla þegar tækifæri bauðst. Þökkum öllum þeim frábæru aðilum sem styrktu þessa sýningu með fjárframlagi og vinnu, án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika. Þetta varð frábær samvinna þar sem ótrúlega margir lögðu hönd á plóg og lögð var nánast nótt við dag til þess að koma hlutum í það stand sem við vildum hafa þá.
Maður fyllist þakklæti, yfir því að fá að kynnast og vinna með svo frábæru og fórnfúsu fólki. Allt frá því að ríða í sýningunni í að þrífa og sinna öllum öðrum verkum . Kærar þakkir til ykkar allra, það voru snillingar í öllum störfum.
Þessum skrifum fylgja myndir frá sýnikennslunni, erum enn að bíða eftir því að myndirnar úr galasýningunni verði tilbúnar til birtingar.
 
Fyrir hönd framkvæmdaraðila Olil Amble
Myndir: Bjarney Anna Þórisdóttir.
 {gallery}From the Clinic{/gallery}