17
Oct 19

Þá er ég loksins búin að geta keypt myndband af forkeppni okkar Álfarins frá Heimsmeistaramótinu en þar vorum við efst að lokinni forkeppni. Í úrslitum fór ekki vel eins og flestir vita og enduðum við Álfarinn í sjötta sæti í fimmgangi F1 HM í Berlín 2019.
Eftir ýmsar hugleiðingar er niðurstaðan sú að við Álfarinn áttum framúrskarandi ár á keppnisvellinum, en við tókum þátt í fjórum sterkustu fimmgangs keppnum heims sem voru aðgegnilegar fyrir okkur. Meistaradeildin, Reykjavíkurmeistaramót, Íslandsmót og Heimsmestaramót og urðum efst í öllum forkeppnunum og það á okkar öðru keppnisári. Endanlega varð það annað sæti í Meistaradeildinni, fyrsta sæti á Reykjavíkur- og Íslandsmestaramótum og sjötta sæti á Heimsmeistaramótinu.
Auk þess náðum við þriðja sæti í gæðingafimi Meistaradeildarinnar og erum í fjórða sæti á heimslistanum í fimmgangi, með m.a. hæstu einkunn sem gefin hefur verið í fimmgangi á þessu ári 7,77.
Eftir á að hyggja var endirinn á HM það eina leiðinlega þar sem þetta var okkar Álfarins síðasta keppni saman.

 

Annað sem ég vil gjarnan minnast á og koma á framfæri er þakklæti til þeirra fyrirtækja og félagsins míns Sleipnir sem studdu okkur með fjárframlagi til þáttöku á HM en án þeirra stuðnings hefði þátttakan á HM verið verulega erfið. Það er meira en að segja það hjá fyrirtæki að leggja nánast niður öll störf í mánaðartíma vegna undirbúnings til þáttöku á HM. Þetta var okkar tekjuhæsti stóðhestur sem við tókum sjensinn á að fara með úr landi óseldan. Bara að taka þessa ákvörðun tók tíma, svo bættust við undirbúningsfundir landsliðsins, fatamátun, innkaup á allskonar varningi sem við kynnum að þurfa á HM, fyrir bæði hesta og knapa. Þrjár tímafrekar og miklar heilbrigðisskoðanir fyrir landsliðið, væntanlega sölu og fyrir tryggingu á hestinum. Sæðistaka, gæðaskoðun og hæfni hestsins til að sinna sæðingum, allur undirbúningur fyrir útflutning hestsins og svo mætti lengi telja. Ekki veit ég hvað varð um tímann en frá Íslandsmóti og fram að HM var lítið annað gert hér á bæ. Engar kennsluferðir og hvorki kynbótaárið né keppnisárið kláraðist á þann hátt sem við hefðum viljað. En það var þess virði, virkilega gaman að vera þátttakandi í þessu ævintýri sem HM var.

Það er mér mikilvægt að þið sem studduð okkur og þá um leið landsliðið okkar í hestaíþróttum, gerið ykkur grein fyrir því hvað það skipti okkur máli og hvað þið gerðuð mikið fyrir okkur með þessum stuðningi. Þetta hefði alls ekki endilega þurft að enda eins vel og raunin varð, en við seldum hestinn á mótinu og staða okkar er verulega betri nú en áður.

Stuðningsaðilarnir voru:
Vélaverkstæði Þóris, Selfossi
IB, Ingimar Baldvinsson, Selfossi
Maskína ehf, Þóra Ásgeirsdóttir
Furuflís ehf,
Toyota Selfossi, Haukur Baldvinsson
M.Þ Byggingar, Margeir Þorgeirsson
Dýralæknaþjónustan Drösull, Björgvin Þórisson
Nýmót, Hermann Arason
Dýralæknaþjónusta Suðurlands
Málning ehf, Hjörtur Bergstað

Og síðast en ekki síst hestamannafélagið okkar Sleipnir.
Takk kærlega fyrir að standa þétt við bakið okkur á þessari stundu, það skipti sköpum fyrir okkur.

{gallery}WM bolur 2019{/gallery}