04
Sep 09

Þegar þessi orð eru skrifuð er búið að sýna til fullnaðardóms tiu tryppi undan Álfasteini.

 Þau eru fjögurra og fimm vetra gömul og er meðaleinkunn þeirra 8,00 fyrir byggingu,

 8,07 fyrir hæfileika sem gerir  aðaleinkunn  8,05.

Fimm eru fjögurra vetra og fimm eru fimm vetra. Sex þeirra eru með 8,0 og yfir,

 hæðst þeirra er Brimnir frá Ketilsstöðum undan heiðursverðlaunahryssunni Vakningu,

með 8,33. Þrjú eru með 7,90 og yfir og aðeins einn undir og

 það er Almar frá Ketilsstöðum undan Orku frá Gautavik, 4 v. með 7,67.

Tryppin sem komið hafa til tamningar hjá okkur hafa flest verið skemmtileg,

 kjörkuð  með flottar hreyfingar.

Í haust frumtemjum við sex tryppi undan Álfasteini sem fara á fjórða vetur,

undan Snilld, Hefð og Vakningu frá Ketilsstöðum, Lilju frá Litla Kambi

og systurnar Þulu og Vöku frá Hellubæ. 

Verður mjög spennandi að sjá hvernig útkoman verður.

Eins og flestir vita var Álfasteinn seldur til Danmerkur

og þvi ekki til afnota lengur hér á landi en ef útkoman heldur áfram að vera

 svona jákvæð er aldrei að vita nema litli albróðir verði í hrikalega góðum málum.

Læt fylgja nokkrar myndir af Hafdísi frá Hólum en hún er fjögurra vetra gömul

 i eigu Vildísar Óskar Harðardóttur og Steindórs Guðmundssonar á Hólum en hún

var efsta hryssan i sínum flokki á síðsumarssýningunni

á Hellu með 7,90 í aðaleinkunn. 

 

 2009-09-03_sis_hella09_002  Svona áttu að standa. Bergur að stilla upp og Steindór fylgist með að allt fari rétt fram.
   hafds09Hafdís frá Hólum.
 2009-09-03_sis_hella09_001  Verið að dæma réttleika.......