30
May 19

Mig langar að birta þessar fallegu myndir af þessari veturgömlu hryssu, Gullborgu og eiganda hennar og ræktenda, Öldu Ólafsdóttur. Gullborg er undan Mynd frá Haukatungu 1 Syðri og Álfgrími frá Syðri-Gegnishólum. Til er þegar genetísk alsystir hennar, Eldborg, sem er farinn að standa sig vel í keppni en hún vann meðal annars slaktauma töltið í Vesturlandsdeildinni í vetur. Alda hefur stækkað þó nokkuð síðan hún kom til mín og pantaði undir Álfgrím vegna þess að henni fannst hann lang flottastur. Þetta virðist hafa verið góð ákvörðun hjá henni, enda svipfallegt og myndarlegt tryppi.

{gallery}Gullborg fra Haukatungu 1 sydri{/gallery}