05
Jul 19

Þetta myndarfolald fæddist í gær 4 júlí. Móðir þess er Djörfung Álfasteinsdóttir frá Ketilsstöðum. Djörfung var hæsta heiðursverðlaunahryssan í fyrra og er þriðja hryssan í röð í beinan kvenlegg að ná þessari heiðursviðurkenningu en móðir hennar er Framkvæmd og amma Hugmynd frá Ketilsstöðum. Faðir folaldsins er Arður frá Brautarholti sem einnig, eins og faðir sinn Orri, er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, þannig væntingarnar eru einhverjar.

{gallery}Djorfung kostud 2019{/gallery}