04
Apr 12

Hér koma nokkrar myndir af Frama frá Ketilsstöðum, hann verður fimm vetra í vor og er undan Sveini Hervari frá Þúfu og Framkvæmd frá Ketilsstöðum. Frami er mikill töltari en verið er að kanna þessa dagana hvort hann búi yfir skeiði lika, en það var ekki til staðar í fyrra.  Hann á þrjú eldri systkini með 9,5 fyrir skeið, en Sveinn Hervar hefur nú gefið klárhesta að megninu til þannig að spennandi verður að sjá hvort hefur betur, Sveinn Hervar eða Framkvæmd.

18 mars 087 18 mars 091-1 18 mars 094

         Frami frá Ketilsstöðum, knapi Elin Holst. Myndir: gangmyllan